Innlent

Krafturinn í gosinu gæti aukist veru­lega haldi kviku­söfnun á­fram

Atli Ísleifsson skrifar
Enn er einungis einn gígur virkur.
Enn er einungis einn gígur virkur. Jón Bjarni Friðriksson/Veðurstofan

Eldgosið við Sundhnúk heldur áfram og er enn einn gígur skammt austan við Sundhnúk, virkur. Landris í Svartsengi hefur áfram á sama hraða og eru meiri líkur á því að kraftur eldgossins á Sundhnúksgígaröðinni aukist verulega, haldi kvikusöfnun áfram á svipuðum hraða.

Þetta kemur fram í nýrri færslu Veðurstofunnar um eldgosið. Þar segir að hraun renni stutta vegalengd til suðurs frá gígnum í opinni hrauná en lengra í lokuðum rásum. Hluti hraunbreiðunnar nærri varnargörðum austan Grindavíkur heldur áfram að þykkna hægt og rólega og er áfram hætta á gasmengun á svæðinu.

Fram kemur að landris í Svartsengi hafi haldið áfram á sama hraða og geri líkön ráð fyrir því að það magn kviku sem bæst hefur við kvikuhólfið í Svartsengi frá því að eldgosið hófst 16. mars nálgist nú 10 milljón rúmmetrar.

„Í fyrri atburðum hefur kvika hlaupið frá Svartsengi þegar á bilinu 8 til 13 milljónir rúmmetrar hafa bæst við í kvikuhólfið frá síðasta kvikuhlaupi.

Línuritið sýnir áætlað magn kviku sem hefur bæst við undir Svartsengi á milli þeirra eldgosa eða kvikuhlaupa sem hafa orðið frá því í nóvember 2023.Veðurstofan

Haldi kvikusöfnun áfram á svipuðum hraða eru meiri líkur á því að kraftur eldgossins á Sundhnúksgígaröðinni aukist verulega.

  • Nýjar gossprungur opnast á svæðinu milli Stóra-Skógfells og Hagafells og/eða núverandi gosop stækkar vegna skyndilegrar aukningu í hraunflæði sem gæti orðið sambærilegt við upphafsfasa síðustu eldgosa á svæðinu. Það gæti gerst með mjög stuttum eða engum fyrirvara.
  • Einnig er mögulegt að kvikuflæði úr kvikuhólfinu undir Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina fari að aukast jafnt og þétt þar til að jafnvægi verði á milli innstreymi kviku inn í kvikuhólfið og útstreymis þaðan og uppá yfirborð.

Einnig er mögulegt að það verði kvikuhlaup sem endi með því að nýjar gossprungur opnast annarsstaðar en á svæðinu milli Stóra-Skógfells og Hagafells. Þessi sviðsmynd er talin ólíklegri en hinar og henni myndi fylgja töluverð skjálftavirkni og aflögun með meiri fyrirvara en undanfarin eldgos

Á miðvikudaginn, 24. apríl, framkvæmdu sérfræðingar Veðurstofunnar mælingar á gasútstreymi frá eldgosinu. Það ver metið 6-9 kg/s af SO2 en í síðustu mælingu sem gerð var fyrir tveimur vikum, 12. apríl, var gasútstreymið metið 10 –18 kg/s. Það eru ekki vísbendingar um að það sé að draga gasútstreymi út frá eldgosinu. Á meðan að eldgos heldur áfram getur flæði SO2 verið mjög breytilegt frá degi til dags (eins og í eldgosin við Fagradalsfjall sýndu). Áfram er hætta á gasmengun n á svæðinu umhverfis gíginn sem og í byggð á Reykjanesskaganum og bendum við fólki á svæðinu að fylgjast með á loftgæðum og kynna sér þar viðbrögð við loftmengun frá eldgosinu,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×