Handtekinn í tengslum við áform um að ráða Selenskí af dögum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 19. apríl 2024 06:32 Joe Biden Bandaríkjaforseti er meðal þeirra sem hafa notað flugvöllinn. Getty/Omar Marques Pólskur maður hefur verið handtekinn í tengslum við áform rússneskra yfirvalda um að ráða Vólódímír Selenskí Úkraínuforseta af dögum. Þetta segja saksóknarar í Póllandi og Úkraínu.
Í yfirlýsingu frá ákæruvaldinu í Póllandi segir að maðurinn, sem er kallaður Pawel K, sé sakaður um að hafa haft í hyggju að veita Rússum upplýsingar um flugvallaröryggi. Þá er hann sagður hafa verið handtekinn í Póllandi á miðvikudag. Upplýsingarnar sem maðurinn hugðist koma til Rússa varða Rzeszów-Jasionka flugvöllinn í suðausturhluta Póllands, nærri landamærunum að Úkraínu, sem þjónar sem miðpunktur flutninga hergagna og annarra aðfanga inn í Úkraínu. Flugvöllurinn er undir stjórn Bandaríkjahers og þangað koma gjarnan erlendir ráðamenn þegar þeir heimsækja Selenskí. Selenskí er sjálfur tíður gestur vallarins. Maðurinn á yfir höfði sér allt að átta ára fangelsi. Guardian greinir frá þessu en í frétt miðilsins kemur einnig fram að samkvæmt yfirvöldum í Þýskalandi hafi tveir Þjóðverjar af rússneskum uppruna verið handteknir fyrir njósnir en einn þeirra er sagður hafa samþykkt að fremja árásir til að koma í veg fyrir flutning neyðargagna til Úkraínu. Þeir voru sömuleiðis handteknir á miðvikudag.
Innrás Rússa í Úkraínu Pólland Rússland Úkraína Mest lesið Stór hópur fullorðins fólks á Íslandi lifir eins og börn Innlent Banaslys á Suðurlandsvegi eftir grjóthrun Innlent Spyr um ábyrgð skólastjóra í stóra skómálinu Innlent Hvetja landsmenn til að búa sig undir neyðarástand Innlent „Hér er verið að saka fólk um alvarlega þætti“ Innlent Menningarslys verði frumvarpið samþykkt Innlent Suðurlandsvegi lokað vegna alvarlegs slyss Innlent Vilja úthýsa einkaþotum og þyrlum Innlent Trump „mjög reiður“ út í Pútín Erlent Reksturinn í uppnámi og uppsagnir fyrirhugaðar Innlent Fleiri fréttir Rússar hafi framið 183.000 stríðsglæpi „Ekki að grínast“ um þriðja kjörtímabilið Einn sagður hafa drepið hina tvo Hafa enn ekki náð utan um skaðann í Mjanmar ESB sagt íhuga að útvatna loftslagsmarkmið sín Morð í Svíþjóð ekki eins fá í áratug Le Pen sakfelld fyrir fjársvik og bannað að bjóða sig fram til forseta Fordæma árás á sjúkraliða Þrír fundust látnir í Noregi „Margir sem ég þekki hafa þurft að yfirgefa heimili sín“ Trump „mjög reiður“ út í Pútín Þýsk geimflaug hrapaði eftir hálfa mínútu Erfitt að átta sig á áformum Trumps „Sonur minn hjálpar mér að halda áfram“ Fundu fólk í rústunum sextíu klukkustundum eftir skjálftann Kærir Musk til hæstaréttar vegna milljónagjafa til kjósenda „Við náum Grænlandi, hundrað prósent“ Leita enn og vara við miklum skorti á sjúkravörum Ný ríkisstjórn mynduð í Sýrlandi Hamasliðar tilbúnir að frelsa gísla fyrir vopnahlé Mette Frederiksen heldur til Grænlands Hundruð þúsunda mótmæla og 1900 handteknir Fleiri en 1600 látnir í Mjanmar Fyrrverandi kærasta Tate sakar hann um kynferðisbrot Heimsókn Vance óviðeigandi og óviðunandi Utanríkisráðherra Danmerkur: „Svona talar þú ekki við nána bandamenn þína“ Tala látinna komin yfir þúsund Segir orðræðu varaforsetans ósanngjarna Á annað hundrað látnir í Mjanmar „Það er skítkalt hérna“ Sjá meira