Innlent

Hætta með safn­skóla fyrir grind­vísk börn

Bjarki Sigurðsson skrifar
Börn að leik í Grindavík árið 2020.
Börn að leik í Grindavík árið 2020. Vísir/Vilhelm

Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar hefur samþykkt að leggja af safnskóla fyrir leik- og grunnskólabörn bæjarins. Á næsta skólaári munu öll börn sækja skóla sem næst sínu heimili og þurfa foreldrar og forráðamenn að sækja þar um skólavist. 

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Grindavíkurbæjar. Í kjölfar þess að bærinn var rýmdur undir lok síðasta árs voru stofnaðir safnskólar fyrir börnin úr bænumá fjórum stöðum. 

„Bærinn mun uppfylla fræðsluskyldu sína með samningum við önnur sveitarfélög og greiða fyrir þjónustu þeirra við leik- og grunnskólabörn. Unnið er að því að foreldrar og forráðamenn hafi sveigjanleika við val á leik- og grunnskóla fyrir sín börn með tilliti til aðstæðna hverju sinni, félagslegra tengsla, námsþarfa o.s.frv.,“ segir í tilkynningunni. 

Boðið verður upp á sálfélagslegan stuðning fyrir börn og ungmenni og sérstakar móttökuáætlanir verða í leik- og grunnskólum. Eftirfylgni verður með skólagöngu og þjónustu við grindvísk börn og fylgst verður með líðan þeirra og skólasókn. 

„Með ákvörðun sinni vill bæjarstjórn stuðla að stöðugleika í lífi barna og minnka álag á fjölskyldur frá Grindavík. Þá er markmiðið að tryggja börnum og ungmennum gott umhverfi fyrir leik og nám, vinna gegn félagslegri einangrun og tilfinningalegum erfiðleikum,“ segir í tilkynningunni. 

Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar Grindavíkur, bendir á að safnskólafyrirkomulagið hafi aldrei verið hugsað sem framtíðarskipulag skólastarfs.

„Áhrif náttúruhamfaranna á líf bæjarbúa hafa verið gríðarleg og nú blasir nýr veruleiki við okkur – uppkaup ríkisins á fasteignum eru hafin, lögheimilisflutningum frá Grindavík fjölgar og fyrirsjáanlegt tekjufall sveitarfélagsins er mikið. Það er okkar skylda að bregðast við og búa svo um hnútana fjárhagslega að bærinn okkar geti tekið við sér hratt og örugglega þegar aðstæður leyfa. Farsæld barna og ungmenna er í algjörum forgangi og ákvörðun um skólahald er tekin á þeim grundvelli,“ er haft eftir Ásrúnu Helgu í tilkynningunni. 


Tengdar fréttir

Aftur skólaskylda fyrir grindvísk börn

Skólaskylda mun aftur taka gildi fyrir börn frá Grindavík þann 4. janúar. Það er eftir að undanþága var veitt vegna rýmingar bæjarins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×