Innlent

Frum­varp um sölu á restinni af Ís­lands­banka komið fram

Heimir Már Pétursson skrifar
Nái frumvarp fjármálaráðherra um söluna á Íslandsbanka fram að ganga verður bankinn að fullu kominn úr eign ríkisins á næsta ári.
Nái frumvarp fjármálaráðherra um söluna á Íslandsbanka fram að ganga verður bankinn að fullu kominn úr eign ríkisins á næsta ári. Vísir

Frumvarp fjármálaráðherra um sölu á því sem eftir er af eign ríkisins í Íslandsbanka var afgreitt úr ríkisstjórn í morgun. Gert er ráð fyrir því af hlutirnir verði seldir almenningi í tveimur áföngum á þessu ári og næsta.

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir fjármálaráðherra segir frumvarpið nú fara til meðferðar hjá þingflokkum stjórnarflokkanna áður en það verði formlega lagt fram á Alþingi.

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir fjármálaráðherra vonar að hægt verði að byrja sölu á því sem eftir er af eign ríkisins í Íslandsbanka á þessu ári og ljúka sölunni á næsta ári.Stöð 2/Arnar

„Það er forgangsmál að klára það verkefni," segir Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir fjármálaráðherra. Verði frumvarpið að lögum veiti það ráðherra heimild til að ráðstafa því sem eftir er af Íslandsbanka.

„Það verður gert í tveimur skrefum,“ segir fjármálaráðherra. Almenningi gefist kostur á að kaupa í bankanum.

„Þetta er eins opið, almennt og gagnsætt og hægt var að smíða það. Þannig að almenningur sé í forgangi og allar upplýsiingar birtar," segir Þórdís Kolbrún.

Milar deilur urðu um síðustu sölu ríkisins á Íslandsbanka sem leiddi að lokum til þess að Bjarni Benedikstsson sagði af sér embætti fjármálaráðherra.Vísir/Vilhelm

Vonandi nái frumvarpið fram að ganga á yfirstandandi vorþingi þannig að hægt verði að hefja söluferlið í samræmi við áætlanir stjórnvalda í ríkisfjarmálum.

„Ef frumvarpið verður að lögum núna á vorþingi, sem ég vona sannarlega að það geri, förum við í þennan undirbúning. Nákvæm tímasetning liggur ekki fyrir en við tökum þá fyrra skrefið á þessu ári og seinna skrefið á næsta ári,“ segir Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir.


Tengdar fréttir

Vill heimild til að selja Íslandsbanka í útboði með áherslu á almenning

Drög að frumvarpi fjármála- og efnahagsráðherra um ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Drögin fela í sér að ríkið ráðstafi eignarhlut sínum í Íslandsbanka með markaðssettu útboði og að sala til einstaklinga hafi forgang.

Telur að forsætisráðherra hefði átt að óska eftir afsögn fyrir löngu

Fyrrverandi fjármálaráðherra telur að forsætisráðherra hefði átt að fara fram á að Bjarni Benediktsson segði af sér ráðherraembætti um leið og kom í ljós að faðir hans var á meðal kaupenda að hlut ríkisins í Íslandsbanka. Samkvæmt lögum hefði fjármálaráðherra átt að vita af aðild föður síns þegar hann samþykkti að selja hlutinn í bankanum. Þá myndi það hvergi gerast í nágrannalöndum að ráðherra sem segir af sér embætti sé samstundis orðaður við annan ráðherrastól.

Bjarni segir af sér sem fjár­mála­ráð­herra

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur ákveðið að stíga til hliðar sem fjármála-og efnahagsráðherra vegna mats umboðsmanns Alþingis á hæfni hans við söluna á Íslandsbanka. Í ljósi þess að faðir Bjarna var á meðal kaupenda hefði Bjarna brostið hæfi þegar hann samþykkti tillögu Bankasýslunnar um söluna. 

VR hættir við­skiptum við Ís­lands­banka

Stjórn stéttarfélagsins VR hefur ákveðið að hætta viðskiptum við Íslandsbanka vegna brota bankans við sölumeðferð á eignarhlut ríkisins í sjálfum sér. Eru viðbrögð bankans og forsvarsmanna hans ófullnægjandi að mati stéttarfélagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×