„Mamma, hvað eru endaþarmsmök?“ Indíana Rós Ægisdóttir skrifar 5. mars 2024 20:00 Indíana Rós er kynfræðingur og með M.Ed gráðu í Kynfræði frá Widener University auk þess að vera með BSc í sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Vísir „Mamma, hvað eru endaþarmsmök?“ spyr krakkinn við eldhúsborðið. Er ekkert heilagt lengur? „
Kynlíf Börn og uppeldi Mest lesið Stormur fellur á prófinu Gagnrýni Foreldrar mæti með lögfræðing með sér í skólann Lífið Ástin blómstrar hjá Steinunni Lífið Stórafmælið hefur afleiðingar Lífið Bóndinn Sigríður Hlynur missti af 350 þúsund krónum Lífið Með engan áhuga á kynlífi og vill ekki ræða það Lífið Björgunarsveitin kom Kötlu til bjargar Lífið Ofurfyrirsætan opnar sig í fyrsta sinn um ástina Lífið Fimm konur í dómnefnd Ungfrú Ísland Lífið Miðpunktur kvöldsins í gegnsæjum samfestingi á árshátíð RÚV Lífið Fleiri fréttir Tónlistarfólk hjálpar leikskólabörnum að komast á EM í skák Stórafmælið hefur afleiðingar Fimm konur í dómnefnd Ungfrú Ísland Ofurfyrirsætan opnar sig í fyrsta sinn um ástina Foreldrar mæti með lögfræðing með sér í skólann Ólsen ólsen extra: Leikurinn þróast mikið og orðinn mun hraðari Bóndinn Sigríður Hlynur missti af 350 þúsund krónum Björgunarsveitin kom Kötlu til bjargar Fögnuðu konum í ljósmyndun á alþjóðlegum baráttudegi Nagli og lætur ekki vaða yfir sig Með engan áhuga á kynlífi og vill ekki ræða það Sesarsalat takkó sem þú verður að prófa Skaust fyrr af æfingu og sótti milljónir í verðlaunafé Glæsilegir gestir á fjáröflunar-galakvöldi Ljóssins Ástin blómstrar hjá Steinunni Endurnýjuðu heitin að rússneskum sið Langaði í fleiri ævintýri og fluttu því frá Íslandi Miðpunktur kvöldsins í gegnsæjum samfestingi á árshátíð RÚV Frægasta dúkka í heimi mótaði Erlu mest Birta Líf og Gunnar Patrik eignuðust dóttur Selur íbúðina og flytur til Eyja Silfurrefurinn George Clooney á bak og burt Kviknakinn Pétur Jóhann veinaði í brasilísku vaxi Lá ekki á óvinsælum skoðunum sínum Stjörnulífið: Skvísuferðir, skvísulæti og ljóskureisa Tapsár Måns svarar gagnrýnendum fullum hálsi Ungfrú Ísland snýst ekki um fallegustu stelpuna Ástin spyr ekki um aldur hjá þessum pörum „Þetta er meiri háttar draumur að rætast” Dóttir Annýjar og Heiðars nefnd í dag Sjá meira
„Hvað viltu vita um endaþarmsmök...“ svara ég... Vonandi ekki neitt... Kaldur sviti. Hjartslátturinn eykst. Hausinn á milljón. Hvernig svara ég þessu? Hvar heyrði krakkinn þetta? Hvað ef þau spyrja hvar þau voru getin? Hvort þú hafi einhvern tímann fengið klamydíu? Hvar kynntust þið og mamma? Hvenær sváfuð þið fyrst saman? Átt þú að svara öllu eða er nóg að segja: „einu sinni á Þjóðhátíð 2012“? Kynlífið með Indíönu Rós kynfræðingi er nýr vikulegur liður á Vísi. Í honum fræðir Indíana Rós lesendur um kynlíf og svarar spurningum frá lesendum. Ef þú vilt senda Indíönu Rós spurningu er hægt að finna spurningaform neðst í greininni. Panikkið heldur áfram og munnþurrkur hefur bæst við og allt í einu getur þú ekki talað án þess að röddin sé eins og þú sért aftur kominn í mútur. Þú getur haldið áfram að kvíða fyrir þessu augnabliki en þú getur líka lesið þessi sex góðu ráð sem gott er að hafa í huga þegar kemur að spjalli um kynlíf við börnin. Með góðum undirbúningi og æfingu verður þetta mun minna mál en þú heldur. 1. Fræddu þig Taktu þér tíma til að rifja aðeins upp, eða þá læra frá grunni ef þú fékkst ekki mikla kynfræðslu heima eða þegar þú varst í skóla. Það er enginn afsökun fyrir fordómum eða fávisku þegar við höfum allar heimsins upplýsingar fyrir framan okkur, jafnvel í símanum. Við þurfum ekki endilega að vita allt áður en barnið byrjar að tala og gæti farið að spyrja en það er til fullt af efni á netinu. Hér er ég til dæmis búin að taka saman fullt af efni sem er áreiðanlegt. Það er allt í lagi þó að samræður um kynlíf við börnin sín sé vandræðalegt.Getty 2. Hverjar eru þínar skoðanir og hugmyndir um kynlíf? Hugmyndir okkar um kynlíf geta litað samtalið og haft áhrif á hvort við náum að byggja upp traust. Þær hafa sömuleiðis áhrif á hvort við séum að gefa réttar og gagnlegar upplýsingar. Til dæmis, ef unglingurinn spyr þig um endaþarmsmök og þín skoðun er að það sé ógeðslegt og þú myndir aldrei gera það, þá ætlar þú samt ekki að svara á þann hátt. Kannski er það eitthvað sem unglingurinn hefur prófað eða vill prófa einhvern tímann og þá lærir unglingurinn að kannski sé ekkert hægt að tala við þig um pælingar og áhyggjur tengdar kynlífi, því þeim var síðast mætt með skömm. Við viljum geta veitt gagnleg svör þannig að krakkinn sé líklegri til að leita aftur til okkar. 3. Búðu til góðan tíma fyrir spjall Lífið okkar flýgur fram hjá okkur á hundrað kílómetra hraða og ef við ætlum að bíða eftir rétta tækifærinu fyrir spjall um eitthvað sem viðkemur kynheilbrigði, þá er það líklegast aldrei að fara koma. Settu tíma í dagatalið fyrir þetta eins og allt annað sem við skipuleggjum. Þú getur til dæmis boðið unglingnum á ísrúnt og hlustað á hlaðvarpið Rúmfræði eða Klukkan sex. Þá getur þú líka haft kósý-kvöld og horft á Sex Education eða Big Mouth á Netflix, ýtt á pásu og rætt um umræðuefni sem koma upp í þáttunum. Fyrir yngri börn getið þið til dæmis lesið saman bækur eins og Allir eru með rass eftir Anne Fiske eða Vertu Þú eftir Ingileif og Maríu Rut. Mikilvægt er að skapa rólegt umhverfi og þið séuð nokkurn veginn afslöppuð. Og já, þetta má vera vandræðalegt. Eftir því sem ég kemst næst þá hefur enginn dáið úr því að vera vandræðalegur. 4. Æfðu þig í virkri hlustun Við erum gjörn á að hlusta til að svara, og erum að búa til svar í hausnum á meðan manneskjan talar í stað þess að hlusta til að heyra það sem manneskjan hefur að segja og vera forvitin. Já, hvað er það sem þig langar að vita um endaþarmsmök? Samhliða því að skapa rólegt umhverfi, þar sem þér og krakkanum líður vel, reynum við að mynda öruggt og traust samband með því að tryggja að barnið geti tjáð sig við okkur. Þau mega hafa aðrar skoðanir og langanir en við höfum. Það er ekki nauðsynlegt að vita allt um endaþarminn. Getty 5. Segjum sannleikann Til þess að byggja upp traust þá verðum við að svara öllum spurningum heiðarlega. Auðvitað svörum við eftir skilningi og þroska barnsins. Mundu að þú þarft til dæmis ekki að vita nákvæmlega allt um endaþarminn til þess að geta aflað þér upplýsinga og svarað spurningunni. Við þurfum samt ekki að svara persónulega um okkar kynlíf. Ég held að það sé nánast í hverri einustu kynfræðslu hjá unglingum sem ég fæ eftirfarandi spurningar: „Hvað hefur þú sofið hjá mörgum?“ „Hver er uppáhaldsstellingin þín?“ „Hvenær svafst þú fyrst hjá?“ Þá er nóg að segja á rólegu nótunum „ég ætla nú ekki að tala um kynlífið mitt því það er eitthvað sem ég vil halda útaf fyrir mig“. 6. Við vitum ekki allt Það veit enginn svörin við öllu, en líklega er hægt að leita að svarinu eða finna stað það sem hægt er að fá svör. Þú mátt alveg svara „ég veit það ekki, en ég skal komast að því.“ Þá ferð þú og hreinlega gúgglar. Við erum oft betri en börn að átta okkur á hvað eru áreiðanlegar upplýsingar. Mundu svo, þetta er ekki eitt samtal einu sinni, heldur í gegnum allt uppeldið. Dragðu nú aðeins inn andann, þú getur hlustað á þennan þátt hér sem fjallar einmitt um kynfræðsluna heima og undirbúið þig betur. Ert þú með spurningu fyrir Indíönu Rós? Sendu henni nafnlausa spurningu hér fyrir neðan:
Kynlífið með Indíönu Rós kynfræðingi er nýr vikulegur liður á Vísi. Í honum fræðir Indíana Rós lesendur um kynlíf og svarar spurningum frá lesendum. Ef þú vilt senda Indíönu Rós spurningu er hægt að finna spurningaform neðst í greininni.
Kynlífið með Indíönu Rós Kynlíf Börn og uppeldi Mest lesið Stormur fellur á prófinu Gagnrýni Foreldrar mæti með lögfræðing með sér í skólann Lífið Ástin blómstrar hjá Steinunni Lífið Stórafmælið hefur afleiðingar Lífið Bóndinn Sigríður Hlynur missti af 350 þúsund krónum Lífið Með engan áhuga á kynlífi og vill ekki ræða það Lífið Björgunarsveitin kom Kötlu til bjargar Lífið Ofurfyrirsætan opnar sig í fyrsta sinn um ástina Lífið Fimm konur í dómnefnd Ungfrú Ísland Lífið Miðpunktur kvöldsins í gegnsæjum samfestingi á árshátíð RÚV Lífið Fleiri fréttir Tónlistarfólk hjálpar leikskólabörnum að komast á EM í skák Stórafmælið hefur afleiðingar Fimm konur í dómnefnd Ungfrú Ísland Ofurfyrirsætan opnar sig í fyrsta sinn um ástina Foreldrar mæti með lögfræðing með sér í skólann Ólsen ólsen extra: Leikurinn þróast mikið og orðinn mun hraðari Bóndinn Sigríður Hlynur missti af 350 þúsund krónum Björgunarsveitin kom Kötlu til bjargar Fögnuðu konum í ljósmyndun á alþjóðlegum baráttudegi Nagli og lætur ekki vaða yfir sig Með engan áhuga á kynlífi og vill ekki ræða það Sesarsalat takkó sem þú verður að prófa Skaust fyrr af æfingu og sótti milljónir í verðlaunafé Glæsilegir gestir á fjáröflunar-galakvöldi Ljóssins Ástin blómstrar hjá Steinunni Endurnýjuðu heitin að rússneskum sið Langaði í fleiri ævintýri og fluttu því frá Íslandi Miðpunktur kvöldsins í gegnsæjum samfestingi á árshátíð RÚV Frægasta dúkka í heimi mótaði Erlu mest Birta Líf og Gunnar Patrik eignuðust dóttur Selur íbúðina og flytur til Eyja Silfurrefurinn George Clooney á bak og burt Kviknakinn Pétur Jóhann veinaði í brasilísku vaxi Lá ekki á óvinsælum skoðunum sínum Stjörnulífið: Skvísuferðir, skvísulæti og ljóskureisa Tapsár Måns svarar gagnrýnendum fullum hálsi Ungfrú Ísland snýst ekki um fallegustu stelpuna Ástin spyr ekki um aldur hjá þessum pörum „Þetta er meiri háttar draumur að rætast” Dóttir Annýjar og Heiðars nefnd í dag Sjá meira