Skoðun

Mann­réttindi eru kjarni jafnaðar­stefnunnar

Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir og Þorbjörg Þorvaldsdóttir skrifa

Samfylkingin er flokkur jafnaðarfólks, sósíaldemókrata. Við trúum á jöfn tækifæri, öfluga samtryggingu samhliða öflugu atvinnulífi, og pólitík þar sem almannahagsmunir eru settir ofar sérhagsmunum hinna ríku.

Það sem einnig einkennir jafnaðarstefnuna er að við erum alltaf meðvituð um að ofuráhersla á stóru myndina getur valdið því að jaðarsettir hópar fólks færast lengra út á jaðarinn. Þess vegna eru mannréttindi einn kjarni jafnaðarstefnu og órjúfanlegur hluti hennar. Jafnaðarfólk berst fyrir samfélagi þar sem allir hópar þess fá að tilheyra og þar sem engum er haldið niðri af kerfinu, hvort sem það er eignalítið fólk, fólk sem treystir á lífeyri, fólk af erlendum uppruna, fatlað fólk eða hinsegin fólk. Við vitum að við höfum öll rétt á því að búa við mannlega reisn. Um það snýst okkar pólitík.

Við skulum einnig gera okkur grein fyrir því að lífsskilyrði fólks — og þar með tækifæri — geta mótast af opinberri umræðu um hagi þeirra. Orðræða stjórnmálafólks undanfarið um fólk sem sækir um alþjóðlega vernd, þann hóp samfélagsins okkar sem er í viðkvæmustu stöðunni, hefur undanfarið færst til. Skyndilega er orðið viðtekið að stilla fólki sem flýr hörmungar upp sem einhverskonar ógn við kerfin okkar, þar sem landamæri eru sett í samhengi við velferðarsamfélagið.

Höfum það á hreinu að landamæri Íslands eru lokuð öllum utan Schengen-svæðisins sem hér vilja setjast að. Undantekningin á því er þegar kemur að fólki sem hefur svo sannarlega rétt á að leita alþjóðlegrar verndar á Íslandi. Alþjóðasamfélagið kom sér saman um, í kjölfar hryllings seinni heimsstyrjaldar, að bjarga fólki sem sætir ofsóknum og ofbeldi í heimalandi sínu. Um þetta kerfi verðum við að standa vörð. Allt tal um hámarksfjölda hælisleitenda, sérstaklega á tímum þegar fullkomið neyðarástand ríkir vegna þjóðernishreinsana Ísraels á Gaza, er óábyrgt og ekki í anda jafnaðarfólks. Raunar gengur það gegn jafnaðarstefnunni.

Innviðir samfélagsins okkar hafa löngum verið fjársveltir. Langvarandi vanfjármögnun og einkavæðing veikir stoðir kerfanna okkar, sem hafa þ.a.l. ekki verið í stakk búin til þess að takast á við veldisvöxt ferðamanna og aukinn fólksfjölda undanfarinna ára. En hér er lykilatriðið: Stjórnmálamenn bera þá ábyrgð, ekki fólkið sem kemur hingað til að setjast að og byggja sér líf.

Innflytjendur, hvernig sem þeir koma til landsins, eru hryggjarstykkið í íslensku samfélagi og atvinnulífið treystir á krafta þeirra. Fjölmenning er einfaldlega staðreynd á Íslandi og henni fylgja ótalmörg tækifæri samhliða áskorunum.

Samfylkingin á að tala fyrir mannúð og mannréttindum samhliða þeim kerfisbreytingum sem þarf að ráðast í eftir langan vetur hægristefnu. Förum aftur í kjarnann.

Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir, varaþingmaður Samfylkingarinnar og doktorsnemi.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, bæjarfulltrúi Garðabæjarlistans og formaður Samfylkingarinnar í Garðabæ.




Skoðun

Skoðun

Þorpið

Alina Vilhjálmsdóttir skrifar

Sjá meira


×