Viðskipti innlent

Alexandra Mjöll orðin „mál­pípa við­skipta­vinarins“

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Alexandra Mjöll Jóhönnudóttir hefur gengið til liðs við Póstinn.
Alexandra Mjöll Jóhönnudóttir hefur gengið til liðs við Póstinn. Pósturinn

Alexandra Mjöll Jóhönnudóttir hefur tekið við stöðu sérfræðings í upplifun viðskiptavina hjá Póstinum. Þetta kemur fram í tilkynningu þar sem segir að Alexandra sé málpípa viðskiptavinarins.

Þar kemur fram að Alexandra beri ábyrgð á samræmdri upplifun viðskiptavina og nálgun í gegnum sölu, þjónustu og markaðsmál. Hlutverk hennar sé að tryggja að hagsmunir og óskir viðskiptavina séu efst á blaði þegar kemur að ákvörðunum um nýsköpun, þróun og þjónustuáherslu svo eitthvað sé nefnt.

Alexandra starfaði síðast hjá Nostra og gegndi þar stöðu fjármálastjóra og áður sölu- og markaðsstjóra. Alexandra er með B.Sc. í viðskiptafræði með áherslu á verkefnastjórnun og vinnur nú að því að ljúka meistaragráðu í upplýsingastjórnun þar sem áhersla er á samspil viðskipta og gagna- og hugbúnaðarstjórnunar.

„Það hefur verið áhugavert að fylgjast með stöðugri framþróun í þjónustu við viðskiptavini á síðustu árum þar sem Pósturinn hefur haft viðskiptavininn í brennidepli í allri sinni starfsemi. Pósturinn lítur til þess að bæta upplifun viðskiptavina á öllum snertiflötum með hagnýtingu gagna og þróun stafrænna lausna og það er virkilega spennandi að fá að vera með á þeirri vegferð þar sem Pósturinn á mikið inni,“ segir Alexandra.

Ósk Heiða Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptavina hjá Póstinum segir mikinn feng í að fá svona færan starfskraft í hópinn. „Ég er alsæl með að fá svona framúrskarandi fólk í mitt lið. Alexandra er með mikla sérfræðiþekkingu og það eru forréttindi að vera í teymi með fólki sem hefur einlægan áhuga á upplifun og þjónustu við viðskiptavini. Hér er reynd kona á ferð sem veigrar sér ekki við að ganga hratt og vel til verka,“ segir Ósk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×