Ölvaður ók langt yfir hámarkshraða og endaði á að kýla lögreglumann Hólmfríður Gísladóttir skrifar 4. desember 2023 06:21 Lögregla var meðal annars kölluð út vegna hávaða sem reyndist koma frá tölvuleik. Vísir/Vilhelm Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti nokkuð fjölbreyttum verkefnum í gærkvöldi og nótt og var meðal annars tvívegis kölluð til vegna ölvaðs manns sem var að áreita fólk í miðborginni.
Honum var vísað á brott í fyrra skiptið, virðist hafa snúið aftur og hét því að fara að fyrirmælum lögreglu í seinna skiptið. Tveir voru handteknir í miðborginni grunaðir um sölu og dreifingu lyfja og fíkniefna. Þá var tilkynnt um hávaða frá íbúð en þar reyndist um að ræða einstakling sem var að spila tölvuleik. Lofaði hann að hafa lægra. Lögregla stöðvaði einnig ökumann fyrir of hraðan akstur en sá var á 108 km/klst þar sem hámarkshraði er 60 km/klst. Ökumaðurinn reyndist undir áhrifum áfengis og var fluttur á lögreglustöð en þar endaði hann á að kýla lögreglumann og var í kjölfarið vistaður í fangaklefa. Fleiri mál komu á borð lögreglu þar sem menn voru í annarlegu ástandi og þá var tilkynnt um minniháttar líkamsárás, þar sem tveir voru handteknir og brotaþoli fluttur á bráðamótttöku Landspítala. Lögregla var einnig kölluð til vegna rúðubrots og einstaklinga sem voru að sprengja flugelda. Þá var tilkynnt um umferðaróhapp þar sem kviknaði í bifreiðinni eftir óhappið. Allir komust heilir úr bílnum.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Íslensk flugáhöfn horfði á ljónaárás rétt við hótelið Innlent „Ef hann hefði verið einn þá hefði þetta getað farið miklu verr“ Innlent Af hverju er barnið mitt alltaf að segja Skibidi toilet? Innlent Handtekinn eftir hliðarkeyrslu á talsverðum hraða Innlent „Þegar hægrið fær að ráða ferðinni óheft og án alls taumhalds fer illa“ Innlent Sneri aftur á vettvang banatilræðisins Erlent „Ein versta nóttin“ í Beirút frá upphafi átaka Erlent Mótmælendur hindruðu för lögreglubíls í forgangsakstri Innlent Nýr formaður VG, seðlabankastjóri og ástandið á Gaza Innlent Fannst hann þvingaður til að afsala sér hundinum Innlent Fleiri fréttir „Kveður nýjan tón í samstarfinu sem er efnislega lokið“ Stjónmálafræðingur segir kosningar nær en marga gruni Nýr formaður VG, seðlabankastjóri og ástandið á Gaza Íslensk flugáhöfn horfði á ljónaárás rétt við hótelið Handtekinn eftir hliðarkeyrslu á talsverðum hraða Vilhjálmur Hjálmarsson kjörinn varaformaður ÖBÍ „Ef hann hefði verið einn þá hefði þetta getað farið miklu verr“ Bátarnir frá eldgosinu í Vestmannaeyjum málaðir á vita Af hverju er barnið mitt alltaf að segja Skibidi toilet? „Þegar hægrið fær að ráða ferðinni óheft og án alls taumhalds fer illa“ Fagna löngu tímabærri breytingu Átök í miðausturlöndum, ný forysta VG og mállýska unga fólksins Mótmælendur hindruðu för lögreglubíls í forgangsakstri Svandís og Guðmundur Ingi nýir leiðtogar Vinstri grænna Málningu kastað og ryskingar við sendiráðið Fannst hann þvingaður til að afsala sér hundinum Biskup Íslands predikar í Vík á 90 ára afmæli kirkjunnar Erfitt að setja tölu á hve margir vilji stjórnarslit Harður þriggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi Landsfundur ræðir stjórnarslit og nýjum reglum um blóðgjöf fagnað Tveir stórir skjálftar í Bárðarbunguöskjunni Ríkisstjórnarflokkarnir mælast með tuttugu prósenta fylgi Þorgerður Katrín: Enginn ráðskonurass undir fólki í Viðreisn Tveir reyndust í skotti bíls Mannekla bindur hendur héraðssaksóknara í samráðsmáli Kertavaka til minningar um konur sem hafa dáið vegna kynbundins ofbeldis Munu hlýða kröfu landsfundar verði tillaga um stjórnarslit samþykkt Munu ekki láta af herferð vegna launaþjófnaðarins Orlof húsmæðra: Barn síns tíma eða liður í jafnrétti? Ákveðinn hópur hafi unnið að niðurstöðunni undir yfirborðinu Sjá meira