Sparkað í höfuð í hópslagsmálum á Austurstræti Jón Þór Stefánsson skrifar 2. desember 2023 11:01 Árásin átti sér stað við skemmtistað á Austurstræti. Vísir/Vilhelm Lögregla var kölluð að Austurstræti í Reykjavík í nótt, rétt fyrir fjögur, þar sem var tilkynnt um slagsmál milli nokkurra einstaklinga utandyra við skemmtistað.
Þrír voru handteknir vegna málsins, þar af einn vistaður í fangaklefa, og einn fluttur á bráðamóttökuna með sjúkrabíl. Sá síðastnefndi er ekki talinn mikið eða alvarlega slasaður. Þetta segir Ásgeir Þór Ásgeirsson, aðstoðarlögreglustjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Vísi. Átökunum er meðal annars lýst á þann veg að sparkað hafi verið í höfuð brotaþolans. Þó að fjórir hafi verið handteknir þá hafi átökin fyrst og fremst verið milli tveggja mannanna. Ásgeir telur að hægt verði að notast við efni úr öryggismyndavélum við rannsókn málsins. Sjö mál af minni toga Lögreglu var tilkynnt um sjö aðrar líkamsárásir, eða mál þar sem kom til átaka milli fólks, sem tengdust skemmtanalífinu í miðborginni í nótt. Þau mál eru þó af minni toga en það sem er reifað hér að ofan. Að sögn Ásgeirs var talsverður erill í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi og nótt, sem er oft raunin fyrstu helgina í mánuði þegar fólk hefur fengið útborgað.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Undir áhrifum fíkniefna á vinnuvél Innlent „Þetta er dæmigert baktjaldamakk“ Innlent Konan trúverðug en maðurinn sýknaður því brotið er fyrnt Innlent Kyrrðarstund í Árbæjarkirkju vegna drengsins sem lést á Ítalíu Innlent Lygileg atburðarás í Landsbankanum Innlent Biðst afsökunar á „hörmulegu atviki“ Erlent Íslandsvinurinn OG Maco látinn Erlent Tveggja stafa frost í kortunum og sundlaugar gætu þurft að loka Innlent Sjálfstæðismönnum brugðið yfir mögulegri frestun landsfundar Innlent Tíu ára drengur lést eftir bílslys á Ítalíu Erlent Fleiri fréttir Hvað þarf að ræða í Kryddsíldinni? Enginn læknir á vaktinni „Þetta er dæmigert baktjaldamakk“ Flugeldasala Landsbjargar hafin Ósætti með mögulega frestun landsfundar og flugeldasala Hvað vildu Íslendingar vita á árinu? Konan trúverðug en maðurinn sýknaður því brotið er fyrnt Ófært í Ísafjarðardjúpi Undir áhrifum fíkniefna á vinnuvél Sakamálin sem skóku þjóðina Tveggja stafa frost í kortunum og sundlaugar gætu þurft að loka Jólagjafirnar í ár hittu beint í mark Framkvæmdastjóri Hagkaups furðar sig á heimsókn lögreglu Kyrrðarstund í Árbæjarkirkju vegna drengsins sem lést á Ítalíu Verið að athuga frekari þvingunaraðgerðir Sjálfstæðismönnum brugðið yfir mögulegri frestun landsfundar Lygileg atburðarás í Landsbankanum Rann á snjóruðningstæki og bíllinn óökuhæfur Öryggisógn í Eystrasaltinu og óskiljanlegur „gjörningur“ lögreglu Tveir bílar rákust saman á brúnni við Fossála Veit vel að önnur kjör en laun þurfi að ræða Hætta leitinni í Meradölum Innan marka að kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Súðavíkurhlíð opin á ný Leit við Meradali í snælduvitlausu veðri Búið að opna Holtavörðuheiði á ný Þungar vikur framundan Skilaréttur neytenda ríkari ef varan er keypt á netinu Lögregla hafi hálfpartinn „hrökklast frá“ Hæstiréttur fer beint í búvörulagamálið Sjá meira