Skoðun

Mann­úð fyrir jólin

Inga Sæland skrifar

Eldra fólk sem hefur ekkert annað sér til framfærslu en greiðslur almannatrygginga tilheyra þeim þjóðfélagshópi sem haldið er í sárri fátækt og búa við algjöra neyð.

Öryrkjar lifa einnig lang flestir við fátækt þar sem greiðslur almannatrygginga til þeirra eru langt undir framfærsluþörf. Því er kaldhæðnislegt til þess að vita að öryrkjar sem búa við sára fátækt skuli vera skelfingu lostnir yfir því að verða 67 ára þar sem á einni nóttu verða þeir ekki einungis fullfrískir því þeir teljast ekki öryrkjar lengur, heldur missa allt sem heitir aldurstengd örorka. Þannig geta greiðslur til þeirra lækkað um tæpar 30 þúsund kr. á mánuði af tekjum sem eru langt frá því að vera mannsæmandi fyrir nokkurn einstakling.

Það eru ekki einungis „fyrrverandi“ öryrkjar sem eru fastir í þessu mannvonskukerfi, heldur er ráðist af mikilli grimmd á fullorðnar konur sem hafa eytt allri sinni starfsævi sem heimavinnandi húsmæður. Konur sem áunnu sér engin lífeyrissjóðsréttindi og lifa eingöngu á berstrípaðri framfærslu almannatrygginga eins og hún er nú gæfuleg. Það eru engin rök, engin einustu rök sem mögulega geta réttlætt slíkan óþverraskap stjórnvalda sem hafa með vitund og vilja fest þennan viðkvæma hóp í sárafátækt.

Við í Flokki fólksins höfum barist eins og grenjandi ljón fyrir bættum kjörum og breyttu hugarfari stjórnvalda gagnvart þessum viðkvæmustu þjóðfélagshópum. Eftir óbilandi margra ára baráttu okkar hafa öryrkjar fengið greiddan jólabónus fyrir tvenn sl. jól og munu til allrar hamingju einnig fá hann greiddan fyrir þessi jól. Fyrir komandi jól nemur jólabónusinn rúmum 66.000 krónum skatta og skerðingarlaust. Hins vegar hefur sárafátækasta eldra fólkið verið skilið útundan fram til þessa.

Flokkur fólksins hefur ítrekað lagt fram breytingatillögur við fjáraukann sem kveða á um að þeir efnaminnstu sem náð hafa 67 ára aldri fái einnig þennan jólabónus. Við höfum krafist þess að þetta óverjandi óréttlæti sé leiðrétt en 34 þingmenn ríkisstjórnarflokkanna , þ.e Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri hreyfingrinnar Græns framboðs, höfnuðu því einróma í atkvæðagreiðslu um málið okkar fyrir sl. jól.

Flokkur fólksins gefur þeim enn eitt tækifærið til að sjá sig um hönd og sýna þessu fólki gæsku í stað mannvonsku. Ég mun enn og aftur koma með breytingatillögu við fjáraukann, um að eldra fólk sem einungis hefur greiðslur almannatrygginga til að lifa af, fái sambærilegan skatta og skerðingalausan jólabónus og öryrkjar. Um er að ræða tæplega 2100 einstaklinga og mun kostnaðurinn af því vera um 138 milljónir króna. Þegar litið er til þess fjárausturs sem stjórnvöldum virðist svo tamt að stunda, þá er með öllu óskiljanlegt að þau neiti eldra fólki í sárri fátækt um jólabónus sem myndi skipta sköpum fyrir þau til að geta tekið að einhverju leiti þátt í jólunm með okkur hinum.

Fátækt er þjóðarskömm og stjórnvöld sem gera ekki allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir örbirgð í samfélaginu og rétta þeim hjálparhönd sem þurfa eru stjórnvöld sem eru ekki bær til stjórna.

Höfundur er formaður Flokks fólksins




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×