Edda Björk handtekin Árni Sæberg skrifar 28. nóvember 2023 22:57 Edda Björk Arnardóttir hefur verið handtekin. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur handtekið Eddu Björk Arnardóttur vegna norrænnar handtökuskipunar. Hún hafði verið eftirlýst síðan í gær.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Í sumar var greint frá því að norsk yfirvöld hafi krafist þess að Edda yrði handtekin og framseld til Noregs vegna forræðisdeilna hennar við eiginmann sinn fyrrverandi. Sá er íslenskur en býr í Noregi. Hann fer einn með forsjá sona þeirra þriggja og eru þeir með lögheimili hjá honum. Í gær var svo lýst eftir Eddu Björk og athygli vakin á því að það getur varðað fangelsi allt að einu ári að aðstoða eftirlýstan mann við að komast undan handtöku, með því að fela viðkomandi, hjálpa við að flýja eða segja rangt til um hvar viðkomandi sé. Í dag sagði Edda Björk í yfirlýsingu á Facebook að hún hefði ekki gefið sig fram til lögreglu svo hægt væri að framselja hana til Noregs vegna þess að ekki væri komin dagsetning á réttarhöld sem þar eiga að fara fram í máli hennar. Í tilkynningu lögreglunnar er ekkert tekið fram um það hvort Edda Björk hafi gefið sig fram af sjálfsdáðum. Fréttin hefur verið uppfærð.
Lögreglumál Mál Eddu Bjarkar Mest lesið Segir ljóst að Sigurjón skorti hæfi Innlent Kennarar með viðbótarkröfur og fundi frestað Innlent Allir farþegarnir látnir Erlent Pálína 84 ára stendur vaktina alla daga á Landvegamótum Innlent Íslendingar fá leiðbeiningar um viðbrögð við stríði Innlent Klakastykki stórskemmdi bíl Innlent Baráttukonur minnast Ólafar Töru Innlent Ógnaði fólki með barefli í bænum Innlent Óttast að Evrópuför ríkisstjórnarinnar endi sem bjölluat Innlent Ólöf Tara Harðardóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Segir ljóst að Sigurjón skorti hæfi Ógnaði fólki með barefli í bænum Pálína 84 ára stendur vaktina alla daga á Landvegamótum Kennarar með viðbótarkröfur og fundi frestað Klakastykki stórskemmdi bíl Áfram óvissustig á Austfjörðum en aflétt á Vesturlandi Ærandi þögn í Karphúsinu, fangaskipti og biðlistar sem lengjast Íslendingar fá leiðbeiningar um viðbrögð við stríði Viðræður á viðkvæmu stigi og fjölmiðlafólki hent út Loðnuleitin skilaði enn lægri mælingu og engar veiðar ráðlagðar Annasamt hjá björgunarsveitum vegna ofsaveðurs Landsvirkjun leitar að gistingu á Suðurlandi Óskandi að hægt væri að ljúka deilunni í dag Nokkur krapaflóð fallið yfir vegi og óvissustig vegna flóðahættu Baráttukonur minnast Ólafar Töru Bæjarskrifstofur og heimili rýmd „Búið að vera mjög mikið að gera síðasta sólarhringinn“ Vatnsleki, fjúkandi þakplötur og ófærir ökumenn Óttast að Evrópuför ríkisstjórnarinnar endi sem bjölluat Stórir pollar leika bílstjóra grátt Hellisheiði opin á ný Vonskuveður framundan Gunnar Bragi starfsmaður Miðflokksins Um hundrað manns dvelja í Grindavík Snjóflóð féllu hjá Ólafsvík Sveitarfélögin samþykkja innanhússtillögu ríkissáttasemjara „Borgin átti að vita þetta fyrir löngu, löngu síðan“ Ólöf Tara Harðardóttir er látin Óveður í beinni, gímaldið og skemmdir eftir vatnstjón Hellisheiðin lokuð og óvissustig vegna snjóflóða Sjá meira