Viðskipti innlent

Tvö hundruð milljóna gjald­þrot fé­lags Magnúsar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Athygli vakti þegar Magnús Ólafur sagði hnerra mögulega hafa orsakað það þegar Teslan hans náði 180 kílómetra hraða á Reykjanesbrautinni.
Athygli vakti þegar Magnús Ólafur sagði hnerra mögulega hafa orsakað það þegar Teslan hans náði 180 kílómetra hraða á Reykjanesbrautinni. Vísir

Engar eignir fundust í þrotabúi félagsins Tomahawk Development á Ísland sem var úrskurðað gjaldþrota í febrúar 2019. Félagið var að stærstum hluta í eigu Magnúsar Ólafs Garðarssonar fyrrverandi forstjóra og stofnanda United Silicon.

Fram kemur í Lögbirtingablaðinu í dag að lýstar kröfur í þrotabúið hafi numið 199 milljónum króna. Félagið var stofnað árið 2012 og var tilgangur félagsins sagður vera fjárfesting í eignarhlutum í öðrum félögum, rekstur þeirra og breytingastjórnun, rekstur fasteigna og lánastarfsemi og önnur starfsemi sem stjórn félagsins teldi því til hagsbóta hverju sinni.

Félagið var að tæplega þremur fjórðu hluta í eigu Magnúsar Ólafs en Dani að nafni Thomas Hubschmann átti rúmlega 13 prósent. Þeir Magnús Ólafur voru miklir viðskiptafélagar. Nokkrir aðrir áttu hlut, þeirra á meðal hálfbróðir Magnúsar Ólafs að nafni Friðbjörn Eiríkur Garðarsson lögmaður með rúmlega þrjú prósenta hlut.

Rúmt ár er liðið síðan annað félag í eigu Magnúsar Ólafs var tekið til gjaldþrotaskipta. Það félag hét Tomahawk framkvæmdir og námu lýstar kröfur í þrotabúið 1,3 milljarði króna. 

Magnús Ólafur var sjálfur úrskurðaður gjaldþrota í Danmörku árið 2021. Í úrskurðinum sagði að dómsúrskurður um gjaldþrot næði einnig til eigna hans í öðrum norrænum ríkjum.

Magnús Ólafur hefur í nokkur ár sætt rannsókn héraðssaksóknara fyrir umfangsmikil fjársvik í starfi sínu sem forstjóri United Silicon. Samkvæmt upplýsingum frá embættinu í dag er málið enn á borði þess.

Fyrirtækið var úrskurðað gjaldþrota í janúar árið 2018 eftir að það lenti í miklum rekstrarvanda. Arion banki var stærsti hluthafi og lánveitandi í United Silicon. Um miðjan september 2017 tóku fimm lífeyrissjóðir ásamt bankanum yfir 98 prósent af hlutafé verksmiðjunnar en Arion lánaði verksmiðjunni um átta milljarða króna. Bankastjóri Arion banka hætti störfum fljótlega eftir gjaldþrot United Silicon, Wow air og Primera Air en bankinn hafði veitt stór lán til allra fyrirtækja.

Þá hefur Magnús hlotið dóm fyrir ofsaakstur á Teslu á Reykjanesbraut. Athygli vakti að Magnús Ólafur taldi hnerra mögulega hafa orsakað að bíllinn var mældur á 180 kílómetra hraða.

Magnús er uppalinn í Kópavogi en hefur lengst af ævi sinnar búið í Danmörku þar sem hann stundaði meðal annars dýfingar af kappi.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×