Innlent

Féll af hjóli í Urriðaholti

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Maðurinn var fluttur á slysadeild til skoðunar.
Maðurinn var fluttur á slysadeild til skoðunar. Vísir/Vilhelm

Einstaklingur á hjóli var fluttur á slysadeild til skoðunar eftir umferðarslys á Holtsvegi í Urriðaholti í Garðabæ í morgun.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var maðurinn ekki alvarlega slasaður en maðurinn, sem er ungur að árum, varð fyrir bíl og kastaðist af hjólinu og í jörðina. 

Að sögn slökkviliðs var maðurinn ekki alvarlega slasaður en hann var fluttur á slysadeild til skoðunar eins og áður segir.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×