Innlent

Á­rekstur á Þingvallavegi

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Umferðarteppa hefur myndast á Þingvallavegi vegna slyssins.
Umferðarteppa hefur myndast á Þingvallavegi vegna slyssins. Vísir

Lögregla og sjúkralið var kallað til vegna áreksturs á Þingvallavegi í morgun.

Frímann Baldursson aðalvarðstjóri á Selfossi segir í samtali við Vísi að um tveggja bíla árekstur sé að ræða og ekki hafi orðið slys á fólki. 

Að sögn sjónarvottar hefur umferð tafist talsvert vegna árekstursins og lögregla vinnur nú að því að hleypa umferð fram hjá. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×