Viðskipti innlent

Engin hóp­upp­sögn í októ­ber

Atli Ísleifsson skrifar
Unnur Sverrisdóttir er forstjóri Vinnumálastofnunar.
Unnur Sverrisdóttir er forstjóri Vinnumálastofnunar. Vísir/Arnar

Engin tilkynning um hópuppsögn barst Vinnumálastofnun í nýliðnum októbermánuði.

Þetta kemur fram á vef Vinnumálastofnunar.

Fjórar tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í septembermánuði þar sem 71 starfsmanni var sagt upp störfum.

Með hópuppsögn er átt við uppsagnir atvinnurekanda á fastráðnum starfsmönnum þar sem fjöldi starfsmanna sem sagt er upp á þrjátíu daga tímabili er að minnsta kosti 10 starfsmenn í fyrirtækjum sem venjulega hafa 21-99 í vinnu, minnst 10% starfsmanna í fyrirtækjum með 100-299 í vinnu eða minnst 30 starfsmenn þar sem venjulega eru 300 eða fleiri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×