Prófessor með bakgrunn hjá NCAA, NFL og NBA til HR Atli Ísleifsson skrifar 2. nóvember 2023 15:18 Dr. Hugh Fullagar kemur til HR frá University of Technology í Sydney. HR Dr. Hugh Fullagar hefur verið ráðinn til starfa sem prófessor við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík. Hugh kemur til HR frá University of Technology í Sydney.
Í tilkynningu kemur fram að hann hafi meðal annars starfað sem íþróttafræðingur við University of Oregon og hjá Oregon Ducks í bandarísku NCAA-háskóladeildinni, sem styrktar- og þrekþjálfari hjá Oakland Raiders í NFL-deildinni, við FIFA-læknastöðina og Ólympíumiðstöðina í Þýskalandi og er nú í samstarfi við NBA Global Academy. „Hugh starfaði einnig um skamma hríð hjá AZ Alkmaar FC í Hollandi. Enn fremur hefur hann víðtæka reynslu af ráðgjöf og rannsóknum með fagaðilum eins og slökkviliðsmönnum og sérsveitum. Bæta frammistöðu og minnka meiðsli Hugh er reynslumikill kennari og vísindamaður, ásamt því að vera eftirsóttur fyrirlesari í faginu. Rannsóknarefni hans hafa snúist um að þróa gagnreyndar aðferðir til að bæta frammistöðu og minnka áhættu á meiðslum. Einkum hefur hann skoðað samhengi þreytu, endurheimtar, svefns, meiðsla og þjálfunarálags. Hugh lauk doktorsprófi í íþróttafræðum við Saarland University í Saarbrücken í Þýskalandi árið 2017 og kláraði grunnnám og meistaragráðu við University of Wollongong í Ástralíu fjórum árum fyrr,“ segir í tilkynningunni. Ísland ætíð heillað hann Haft eftir Hugh að hann sé mjög spenntur fyrir því að bætist í hópinn hjá íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík. „Ísland hefur alltaf verið land sem hefur heillað mig með náttúrufegurð sinni, sköpunargleði og sjálfbærni. Fólkið hérna hefur verið virkilega gestrisið og móttökurnar afskaplega góðar. HR er alþjóðlega þekktur sem framsækinn nýsköpunarháskóli og ég get vonandi bætt einhverju við mannauðinn í HR með mínum bakgrunni í þekkingu og reynslu. Meðal annars þegar kemur að því að finna fleiri samstarfsaðila í okkar fagi í viðleitni okkar að skapa þekkingu og gagnreyndar aðferðir til að bæta árangur og draga úr meiðslum. Námsskrá íþróttafræðinnar í HR er að vissu leyti samofin starfsemi landsliða og íþróttafélaga hér á landi og skapar því nemendum einstök tækifæri. Ég get ekki beðið eftir að leggja mitt af mörkum til HR, sem státar nú þegar af frábæru námi, kennslu og rannsóknum á sviði íþróttafræði,“ segir Hugh. Himinlifandi Hafrún Kristjánsdóttir, deildarforseti íþróttafræðideildar HR, segir starfslið einstaklega ánægt með að hafa fengið Hugh til liðs við íþróttafræðideildina. „Rannsóknir hans sýna og sanna að hann er afbragðsgóður rannsakandi og hann er sömuleiðis framúrskarandi kennari. Deildin okkar metur mjög starfsfólk sem býr yfir sterkri fræðilegri en þó jafnframt hagnýtri þekkingu. Sérstaklega mikilvægt í mínum huga er að Hugh hefur umtalsverða reynslu af iðkendum og vinnu á gólfinu. Sérþekking og reynsla Hugh, sérstaklega í bata og svefni, er ómetanleg fyrir Háskólann í Reykjavík, íþróttasamfélagi Íslands og þeim íslensku faghópum sem hann getur átt í samstarfi við. Við erum himinlifandi með þessa viðbót í teymið okkar,“ segir Hafrún.
Háskólar Skóla - og menntamál Vistaskipti Mest lesið Lokuðu Ítalíu á Frakkastíg eftir mótmæli Eflingar Viðskipti innlent Konurnar ofþreyttar en karlmenn vilja meiri frið til að vinna Atvinnulíf Uppsagnir hjá Veitum Viðskipti innlent Oculis á mikilli siglingu og Kauphöllin iðagræn Viðskipti innlent „Allir alltaf að segja að hann sé svo mjúkur“ Atvinnulíf Alma til Pipars\TBWA Viðskipti innlent Sjarminn af sérverslun lifi góðu lífi Viðskipti innlent Misbauð meðferð á hundunum og mátti hætta á námskeiði Neytendur „Frekar kvöldsvæfur heldur en morgunfúll“ Atvinnulíf Auglýsingastofurnar finna fyrir samdrætti Viðskipti innlent Fleiri fréttir Oculis á mikilli siglingu og Kauphöllin iðagræn Lokuðu Ítalíu á Frakkastíg eftir mótmæli Eflingar Sjarminn af sérverslun lifi góðu lífi Alma til Pipars\TBWA Uppsagnir hjá Veitum Auglýsingastofurnar finna fyrir samdrætti Bankarnir verði að lækka vexti jafnhratt og þeir hækkuðu Landsbankinn rekur lestina og lækkar vexti Loks opnað fyrir umsóknir um hlutdeildarlán Bogi og Linda kaupa af Heimum fyrir milljarða Borgin fær milljarða fyrir síðasta þéttingarreit miðborgarinnar Bein útsending: Viðtöl við sérfræðinga um mannauðsmál Uppreisnarleiðtogi snýr heim og tekur við rekstri Hríseyjarbúðarinnar Sýna áhuga á eignum Skagans 3X Indó lækkar líka vexti Íslandsbanki bregst sömuleiðis við stýrivaxtalækkuninni Arion fyrstur til að tilkynna lækkun Engar hópuppsagnir í september Rekstur Rammagerðarinnar gaf vel í fyrra Mikilvægt að íslenskan sé hluti af hverri tæknibyltinguu Gerir óþægilegt samtal auðveldara Þessir sprotar taka þátt í Startup SuperNova í ár Skiltið skuli fjarlægt „Við erum ekki komin á húrrandi ferð niður Esjuna“ Anna Fríða snýr sér að sælgætinu Vaxtahækkun bankanna vó þungt í ákvörðun Ásgeirs Culiacan lokað á Suðurlandsbraut Efla fjármálin með Elfu Herferð í boði Ernu Hreins og Önnu Margrétar Hvíta húsið og Ennemm segja upp fólki Sjá meira