Innlent

Stendur ekki til að lýsa eftir byssumanni

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Líðan þess sem varð fyrir skoti í morgun er eftir atvikum góð. Grímur Grímsson segir manninn ekki í lífshættu en vill ekki svara því hvar skotið hæfði hann.
Líðan þess sem varð fyrir skoti í morgun er eftir atvikum góð. Grímur Grímsson segir manninn ekki í lífshættu en vill ekki svara því hvar skotið hæfði hann. Vísir/Arnar Halldórsson

Grímur Grímsson segir alvarlegt mál að maður sem hafi hleypt af skotum í íbúðarhverfi gangi laus. Hann telur almenning þó ekki í mikilli hættu. Allt kapp sé lagt á að hafa hendur í hári mannsins. Ekki standi þó til að lýsa eftir honum.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur í dag leitað að byssumanni eftir að maður var skotinn fyrir utan fjölbýlishús í Silfratjörn í Úlfarsárdal í Reykjavík í nótt. Mörg börn vöknuðu upp við skothvelli í nótt og var lögregla með töluverðan viðbúnað á vettvangi.

Líðan þess sem varð fyrir skoti er eftir atvikum góð, að sögn Gríms Grímssonar, hjá miðlægri deild lögreglunnar. Hann segir manninn ekki í lífshættu en vill ekki svara því hvar skotið hæfði hann.

Aðspurður um hvort íbúar í hverfinu eða í öðrum hverfum ætti að gera ráðstafanir eða vera varir um sig, segist Grímur ekki telja að almenningi sé mikil hætta búin. Talið er að árásin tengist deilum innan tveggja hópa.

„Hins vegar er það svo að lögregla er með aukinn viðbúnað vegna þess að einstaklingur gengur laus sem hefur hleypt af skoti inni í íbúðarhverfi. Það er ekki hægt að útiloka að saklausir borgarar geti orðið fórnarlömb í slíkum aðstæðum.“

Ákveðin hætta á ferð meðan maðurinn gengur laus

Teljið þið að aðrir gætu verið í hættu?

„Það er sama svar. Það er ákveðin hætta á meðan þessi maður hefur ekki verið handtekinn.“

Grímur segir málið tekið mjög alvarlega og allt kapp sé lagt á að finna manninn sem fyrst. Hann vill ekki gefa upp hvort lögregla leiti að einhverjum sérstökum en segir að ekki standi til að lýsa eftir neinum.


Tengdar fréttir

Fjögurra og átta ára vöknuðu við lögreglu í heimsókn

Kona sem býr í íbúðinni sem skotið var á í skotárás í Úlfarsárdal í morgun, segist í áfalli og enn vera að melta það sem hafi gerst. Skotið var á vegg við hliðina á barnaherbergi þar sem átta og fjögurra ára dætur hennar voru sofandi. 

Vaktin: Lögregla leitar logandi ljósi að byssumanni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar byssumanns eftir að maður var skotinn fyrir utan fjölbýlishús í Silfratjörn í Úlfarsárdal í Reykjavík í nótt. Vísir fylgist með nýjustu vendingum í málinu.

Áhyggjufullur nágranni lýsir stöðugu partýstandi

Íbúi í fjölbýlishúsi við Silfratjörn í Úlfarsárdal segir mikið partýstand hafa verið í íbúð á þriðju hæð fjölbýlishúss þar sem maður var skotinn um fimmleytið í nótt. Íbúðin er í eigu Félagsbústaða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×