Erlent

Lík­ir Mið-Aust­ur­lönd­um við tif­and­i tím­a­sprengj­u

Samúel Karl Ólason skrifar
Lík borið úr rústum húss eftir loftárás á Gasaströndina fyrr í mánuðinum.
Lík borið úr rústum húss eftir loftárás á Gasaströndina fyrr í mánuðinum. AP/Ramez Mahmoud

Abdel Fattah al-Sisi, forseti Egyptalands, líkti Mið-Austurlöndum í morgun við tifandi tímasprengju. Þá hvatti talsmaður Ísraelshers íbúa norðurhluta Gasastrandarinnar til að flýja til suðurs en Ísraelar hafa gert gífurlega umfangsmiklar árásir á svæði nótt og í dag.

Sisi sagði hættu á því að átökin á Gasa myndu vinda upp á sig og að öll Mið-Austurlönd gætu orðið eins og tifandi tímasprengja. Samkvæmt frétt Reuters sagði hann einnig virða ætti fullveldi Egyptalands, eftir að drónar voru skotnir þar niður í gær.

Ísraelar hafa sakað Húta í Jemen, sem njóta stuðnings yfirvalda í Íran, um að nota drónana. Sex slösuðust á jörðu niðri í bæjunum Taba og Nuweiba, þegar drónarnir voru skotnir niður.

„Burtséð frá því hvaðan þeir komu, þá hef ég varað við útbreiðslu þessara átaka. Svæðið verður eins og tifandi tímasprengja sem mun hafa áhrif á okkur öll,“ sagði Sisi.

Abdel Fattah al-Sisi, forseti Egyptalands.AP/Jacquelyn Martin

Samhliða mikilli fjölgun árása og líklegrar innrásar í norðurhluta Gasastrandarinnar í gærkvöldi lokuðu Ísraelar á rafmagn og síma- og netsamband á svæðinu. Það fólk sem náðst hefur í hefur sagt fjölmiðlum ytra að ástandið á svæðinu sé hræðilegt þar sem árásir hafi verið nánast stöðugar.

Sjá einnig: Stöðugar árásir og óreiða á Gasaströndinni

Yoav Gallant, varnarmálaráðherra Ísrael, sagði í morgun að stríð Ísraela gegn Hamas væri í nýjum fasa.

„Jörðin á Gasa skalf,“ sagði hann í yfirlýsingu samkvæmt Times of Israel. „Við gerðum árásir bæði ofan og neðanjarðar, við réðumst á hryðjuverkamenn af öllum tignum, hvar sem þeir voru.“

Þá sagði Gallant að hernaður Ísraela myndi halda áfram og að á sama tíma væri herinn tilbúinn til að verja Ísrael á öðrum vígstöðvum, eins og í norðri við landamæri Líbanon.

Ísraelski herinn birti myndband í dag þar sem íbúar norðurhluta Gasastrandarinnar voru hvattir til að flýja til suðurs. Athygli vekur þó að yfirlýsingin er á ensku, með enskum texta og ætluð fólki sem talar arabísku og hefur ekki aðgang að internetinu eða símasambandi.

Deilt um tölur frá Gasa

Samkvæmt heilbrigðisráðuneyti Gasastrandarinnar hafa rúmlega 7.700 manns fallið í árásum Ísraela og þar af mest konur og börn. AP fréttaveitan hefur eftir talsmanni ráðuneytisins að það að síma- og netsamband liggi niðri hafi líka lamað heilbrigðiskerfið, þar sem fólk geti ekki kallað eftir aðstoð.

John Kirby, talsmaður þjóðaröryggisráðs Hvíta hússins, sagði í vikunni að tölur frá Heilbrigðisráðuneyti Gasa, sem Hamas stýrir, væru ekki trúverðugar.

„Ég myndi persónulega mæla með því að þið notuðu ekki tölur frá stofnun sem rekin er af hryðjuverkasamtökum,“ sagði Kirby.

Talsmenn Hvíta hússins sögðu í kjölfarið að ríkisstjórn Bandaríkjanna mæti það svo að þúsundir hefðu fallið í árásum Ísraela á Gasaströndina. Stór hluti þeirra væru þó Hamas-liðar. Þá segja Ísraelar að Hamas-liðar skýli sér bakvið óbreytta borgara og grafi meðal annars göng þeirra undir skóla og sjúkrahús. Ísraelar hafa einnig sagt að Hamas-samtökin hagnist beinlínis á mannfalli meðal óbreyttra borgara.

Hamas-liðar hafa grafið gífurlega umfangsmikil göng undir Gasaströndinni.

Telja tölurnar of lágar

Blaðamenn Wall Street Journal reyndu að kafa í tölurnar frá Gasaströndinni og kanna hvort þær væru trúverðugar og hvað væri hægt að lesa úr þeim. Sameinuðu þjóðirnar hafa í fyrri átökum á Gasaströndinni staðfest og skráð dauðsföll en samkvæmt starfsmönnum SÞ er það ekki hægt að þessu sinni vegna umfangs árásanna og fjölda látinna.

Sumir starfsmenn SÞ sögðu blaðamönnum WSJ að þeir teldu tölur frá Hamas vera of lágar, þar sem fólk sem lægi enn í rústum húsa væri ekki talið með. Mögulega væri raunverulegur fjöldi látinna mun hærri.

Myndefni sem tekið hefur verið upp á Gasaströndinni hefur sýnt að fjölmargir hafa fallið í árásum Ísraela og gervihnattamyndir sýna að eyðileggingin er mjög umfangsmikil.

Blaðamenn WSJ báru saman tölur frá fyrri átökum á Gasaströndinni. Fyrst árið 2006, þegar Hamas átti í skammlífum en blóðugum átökum við meðlimi Fatah-hreyfingarinnar um stjórn Gasa. Þá samræmdust heildartölur frá ráðuneytinu, Sameinuðu þjóðunum og Ísrael.

Í fimmtíu daga stríði Ísraela og Hamas árið 2014 féllu 2.310, samkvæmt ráðuneytinu. Sameinuðu þjóðirnar sögðu 2.251 og yfirvöld í Ísrael sögðu 2.125. Þá var þó deilt mikið um það hve stór hluti þeirra sem dóu voru vígamenn eða hefðu tekið þátt í átökunum og hve stór margir þeirra sem dóu hefðu verið óbreyttir borgarar.

Í tölum frá heilbrigðisráðuneyti Gasa er enginn greinarmunur gerður á borgurum og vígamönnum.

Mun umfangsmeiri árásir en áður

Í grein WSJ segir að þó Hamas-samtökin stjórni Gasaströndinni séu læknarnir og embættismennirnir sem halda utan um tölur látinna ekki tengdir samtökunum og að sagan sem farið er yfir hér að ofan gefi til kynna að hægt sé að treysta á tölurnar að einhverju leyti, samkvæmt viðmælendum frá Sameinuðu þjóðunum og hjálparsamtökum.

Þúsundir hafa dáið í loft- og stórskotaliðsárásum Ísraela á Gasaströndina.AP/Adel Hana

Þó eru uppi efasemdir um fjölda látinna kvenna og barna. Í stríðinu 2014 voru ungir menn um 62 prósent þeirra sem dóu, samkvæmt tölum frá Sameinuðu þjóðunum. Samkvæmt tölum heilbrigðisráðuneytisins frá þessum átökum eru þeir einungis 34 prósent látinna.

Læknar og íbúar á Gasa segja þó að árásirnar síðustu vikur séu mun umfangsmeiri en þau hafi áður upplifað.

Viðmælandi WSJ, sem er háttsettur embættismaður í ísraelska hernum, segir reglur stríðsins að þessu sinni vera öðruvísi en áður, þar sem Ísrael sé í formlegu stríði. Til marks um það má benda á að snemma í stríðinu tilkynntu Ísraelar að þeir væru hættir að „banka“, eins og það er kallað.

Það er að varpa litlum sprengjum á hús nokkrum mínútum áður en stærri árásir eru gerðar, svo íbúar hafi tíma til að flýja.

Áðurnefndur embættismaður segir þó að enn sé kapp lagt á að fylgja alþjóðalögum. Hann sagði að ef Ísraelar vildu gera árásir á óbreytta borgara gætu hundrað þúsund manns hafa fallið.

„Menn, hryðjuverkamenn, eru á lífi í dag því við ákváðum að skaða ekki fólkið í kringum lína,“ sagði hermaðurinn.


Tengdar fréttir

„Ó­trú­lega aumingja­legt“

Ísland sat hjá í atkvæðagreiðslu um ályktun sem tekin var fyrir á þingi Sameinuðu þjóðanna um vopnahlé á Gasa. Utanríkisráðuneytið segir að ekki hafi náðst samstaða í þinginu um tillögu sem breytti orðalagi ályktunarinnar á þá leið að grimmdarverk Hamas-samtakanna yrðu fordæmd í leiðinni. Þingmaður Pírata segir afstöðu Íslands aumingjalega.

„Hvert dauðs­fall meðal al­mennra borgara er einu dauðs­falli of mikið“

Utanríkisráðherra segir miður að ekki hafi náðst samstaða um að fordæma hryðjuverk á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær. Krafa Íslands um mannúðarhlé á Gasa sé skýr, þrátt fyrir að Ísland hafi setið hjá þegar atkvæði voru greidd um ályktun Jórdana um slíkt mannúðarhlé.

Ís­land greiddi ekki at­kvæði með til­­lögu um vopna­hlé á Gasa

Ísland sat hjá í atkvæðagreiðslu um þingsályktunartillögu sem tekin var fyrir á þingi Sameinuðu þjóðanna um vopnahlé á Gasa. Noregur var eitt Norðurlanda sem greiddi atkvæði með tillögunni. Utanríkisráðuneytið segir að ekki hafi tekist að ná samstöðu um texta ályktunarinnar.

Ráðherrar og herforingjar sagðir deila um innrás

Ísraelski herinn er tilbúinn til innrásar á Gasaströndina en ráðamenn ríkisins og æðstu leiðtogar hersins eru ósammála um hvernig innrásin ætti að fara fram og jafnvel hvort eigi að gera hana yfir höfuð. Þá er sagt ríkja trúnaðarleysi milli ráðamanna og herforingja.

Segja þrjú þúsund börn látin

Sendiherra Palestínu gagnvart Sameinuðu þjóðunum segir þrjú þúsund börn hafa dáið í loftárásum Ísraela á Gasaströndina. Riyad Mansour, segir að stöðva þurfi sprengjuregnið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×