Innlent

Kvennafrídagurinn í myndum

Jakob Bjarnar skrifar
Konur þyrptust þúsundum saman niður að Arnarhóli til að fagna og mótmæla.
Konur þyrptust þúsundum saman niður að Arnarhóli til að fagna og mótmæla. vísir/vilhelm

Allt lagðist á eitt við að gera Kvennafrídaginn og baráttufund við Arnarhól að mest sótta viðburði Íslandssögunnar. Ef að líkum lætur. Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari var á vettvangi.

Veður var með miklum ágætum og metur Ásgeir Þór Ásgeirsson, yfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu, það svo að aldrei hafi verið þetta margt fólk í kringum Arnarhól og í nærliggjandi götum.

Ekki liggja nákvæmar tölur um mætingu en það reyndi lögregla þó með aðstoð myndavéla. „Þetta er nálægt sjötíu til hundrað þúsund manns,“ segir Ásgeir Þór uppnuminn. Óumdeilt er að fjöldinn var rosalegur.

Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari Vísis var á vettvangi, hann fór vítt og breitt um og mundaði vél sína. Hér getur að líta afraksturinn. Látum myndirnar tala sínu máli.

Gríðarlegur mannfjöldi safnaðist saman við Arnarhól og var stemmningin með því allra besta.vísir/vilhelm
Gamlar kempur úr kvennabaráttunni létu sig ekki vanta.vísir/vilhelm
Talsverður hiti var í fundarmönnum og mátti sjá ófá skilti þar sem ýmis slagorð voru sett fram.vísir/vilhelm
Þó margvísleg kröfugerðin væri viðruð var stutt í brosið á samstöðufundinum. Þarna má meðal annars sjá Sólveigu Önnu Jónsdóttur formann Eflingar sem lét sig ekki vanta, þó henni finnist eitt og annað skjóta skökku við.vísir/vilhelm
Yngsta kynslóðin lét sig ekki vanta og hluti hennar tók sér stöðu fremst við sviðið.vísir/vilhelm
Lögreglan segir að aldrei hafi fleiri verið samankomnir við Arnarhól.vísir/vilhelm

Kvennaverkfall væri ekki kvennaverkfall ef Ingibjörg Sólrún Gísladóttir gripi ekki í míkrófóninn.vísir/vilhelm
Mannfjöldann, að uppistöðu konur, dreif að.vísir/vilhelm
Konur á öllum aldri mótmæltu.vísir/vilhelm
Ekki liggur fyrir hversu mörg mættu en víst er að þau eru mörg.vísir/vilhelm



Fleiri fréttir

Sjá meira


×