Íslenski boltinn

Sindri Þór fékk rautt spjald eftir 38 sekúndur

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Sindri Þór var ekki lengi inni á vellinum í dag
Sindri Þór var ekki lengi inni á vellinum í dag Vísir/Hulda Margrét

Sindri Þór Guðmundsson kom inn á sem varamaður í 3-1 tapi Keflavíkur gegn Fylki. Sindri var þó ekki lengi inni á vellinum því aðeins 38 sekúndum eftir skiptinguna fékk hann beint rautt spjald.  

Haaaa?? Sindri Þór var að koma inn á fyrir einni mínútu síðan og hann fór hér rautt spjald fyrir brot á Nikulási Val

skrifaði Dagur Lárusson í beinni textalýsingu Vísis af atvikinu. Sindri Þór henti sér með takkana á undan í tæklingu á Nikulási Val, kantmanni Fylkis. 

Sindri Þór var nákvæmlega jafn lengi inni á vellinum og Steven Gerrard þegar hann fékk frægt rautt spald í leik gegn Manchester United árið 2015. Mögulega er um Íslandsmet að ræða. 

Sjáðu atvikið í spilaranum hér fyrir neðan: 

Klippa: Stutt innkoma Sindra Þórs

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×