Matti úr Hatara til Þjóðleikhússins Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 26. september 2023 09:49 Matthías Tryggvi Haraldsson hefur verið ráðinn í starf listræns ráðunautar Þjóðleikhússins. Aðsend Matthías Tryggvi Haraldsson, leikskáld og sviðshöfundur, hefur verið ráðinn í starf listræns ráðunautar Þjóðleikhússins. Matthías hefur víðtæka reynslu úr íslensku leikhús- og menningarlífi en er þekktastur fyrir leikverk sín og þátttöku í hljómsveitinni Hatara.
Mikil reynsla í menningar- og samfélagsmálum „Matthías Tryggvi gengur til liðs við teymi listrænna stjórnenda Þjóðleikhússins. Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir, sem gegnt hefur starfinu um tæpra fjögurra ára skeið, mun snúa sér að ritstörfum og skrifa nýtt leikrit fyrir leikhúsið eftir að hún lætur af störfum 1. nóvember, þegar Matthías Tryggvi tekur við keflinu,“segir í fréttatilkynningu frá Þjóðleikhúsinu. Þar kemur einnig fram að Matthías Tryggvi sé reynslumikið leikskáld og höfundur en hefur einnig reynslu sem leikstjóri og dramatúrg. „Verk hans hafa verið flutt í Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu, hjá sjálfstæðum leikhúsum og erlendis. Hann var samningsbundið leikskáld Leikfélags Reykjavíkur. Matthías Tryggvi hefur einnig mikla reynslu á öðrum sviðum menningar og samfélagsmála og var meðal annars um árabil í hljómsveitinni Hatara sem vakti athygli víða um heim fyrir tónlist sína, gjörninga og beitta ádeilu. Hann hefur reynslu af dagskrárgerð fyrir útvarp og sjónvarp auk mikillar reynslu af texta- og hugmyndasmíði, m.a. hjá auglýsingastofunni Brandenburg. Matthías Tryggvi hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir verk sín, m.a. Grímuna, íslensku leiklistarverðlaunin fyrir leikrit sitt Síðustu dagar Sæunnar, auk annarra tilnefninga. Hann fékk einnig íslensku tónlistarverðlaunin sem flytjandi ársins með hljómsveit sinni Hatara.“ Í spilaranum hér að neðan má sjá hljómsveitina Hatara ásamt tónlistarkonunni Heiðdísi Hönnu flytja lagið X á Hlustendaverðlaununum 2018: Fiðrildin farin að flögra Matthías Tryggvi er útskrifaður sviðshöfundur frá LHÍ og segist mjög spenntur fyrir komandi verkefni. „Fiðrildin í maganum eru strax farin að flögra. Það er með kærleik í hjarta sem ég stíg í þetta hlutverk og get varla ímyndað mér betri vettvang til að nýta krafta mína. Listin er einstakt starfssvið að því leyti að við þurfum í senn fagmennsku og skýra ramma en ekkert síður óendanlegt pláss til að vera púkar. Með hvort tveggja í huga er ég til þjónustu reiðubúinn,“ segir Matthías. Listrænn ráðunautur Þjóðleikhússins vinnur með Magnúsi Geir Þórðarsyni þjóðleikhússtjóra, Melkorku Teklu Ólafsdóttur leiklistarráðunauti og öðrum listrænum stjórnendum leikhússins að listrænni stefnu, verkefnavali og stuðningi við uppsetningar leikhússins. Hann sinnir höfundarstarfi, þróun leikverka með höfundum og ýmiskonar verkefnastjórn. „Það er mikill fengur í því að fá Matthías Tryggva til liðs við öflugt teymi listrænna stjórnenda Þjóðleikhússins. Hann er hrikalega skemmtilegur listamaður, hefur mikla reynslu, frábæra þekkingu, innsæi og ástríðu sem ég veit að verður dýrmæt viðbót við teymið sem fyrir er í húsinu. Hann kemur úr frjórri grasrót nýrrar kynslóðar íslensks leikhúslistafólks. Við hlökkum mikið til samstarfsins og bjóðum hann velkominn í hópinn,“ segir Magnús Geir Þórðarson þjóðleikhússtjóri.
Leikhús Menning Vistaskipti Tengdar fréttir Matti í Hatara og Brynhildur Karls giftu sig í íslenskri sveitasælu Listræna parið Matthías Haraldsson og Brynhildur Karlsdóttir giftu sig um helgina með pomp og prakt í íslenskri sveitasælu, umkringd sínu nánasta fólki. Faðir Brynhildar, leikarinn Karl Ágúst Úlfarsson, gaf þau saman með táknrænum en ólögformlegum hætti. 21. ágúst 2023 11:18 Matthías í Hatara til Brandenburg Matthías Tryggvi Haraldsson hefur verið ráðinn sem texta- og hugmyndasmiður á auglýsingastofunni Brandenburg. 8. apríl 2022 11:19 Mest lesið „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Lífið Eins og þruma úr heiðskíru lofti Lífið Stjörnulífið: Skvísustælar við bakkann og áminning um óöryggi Lífið Náði að sættast við bróður sinn fyrir andlátið Lífið Gátu ekki talað saman fyrir syngjandi þjónum Lífið Sykursalur orðinn einn vinsælasti veislusalur Reykjavíkur Lífið samstarf Fanney Dóra og Aron gáfu syninum nafn Lífið Bergrún Íris og Kolbrún keyptu í Hafnarfirði Lífið Fylgst með tímaskeiði í lífi konu sem greinist með krabbamein Lífið Byltingarkennd nýjung fyrir blondínur frá JOHN FRIEDA Lífið samstarf Fleiri fréttir „Hrátt háþróað krass, langt leitt krot“ Bjóða landsmönnum nauðbeygð til messu Allt í banönum á Brút Bríet lét sig ekki vanta á sýningaropnun Ynju Blævar Út um allar koppagrundir Alþingis: „Froðan flæðir endalaust, það er bara froða froða“ Skálda opnar: „Kannski ekki margir nógu vitlausir til að framkvæma þessa hugmynd“ Össur Geirsson er heiðurslistamaður Kópavogs 2024 Margmenni í sköpunargleði og stuði á safninu Ólafur Elíasson tekur yfir Piccadilly Circus og Times Square Opna fyrstu umboðsstofuna í eigu leikara Baráttan innra með manni eins og ljós og skuggar Bein útsending: Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Bong Joon Ho verður stafrænn heiðursgestur á RIFF Ævar Þór Benediktsson hlýtur verðlaun Guðrúnar Helgadóttur Ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar Verk Arnhildar og félaga valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr Lyfjameðferð við meðvirkni: „Æ, ég væri bara til í að taka eina töflu“ „Mann- og listfjandsamleg þvæla“ Sjá meira
Matti í Hatara og Brynhildur Karls giftu sig í íslenskri sveitasælu Listræna parið Matthías Haraldsson og Brynhildur Karlsdóttir giftu sig um helgina með pomp og prakt í íslenskri sveitasælu, umkringd sínu nánasta fólki. Faðir Brynhildar, leikarinn Karl Ágúst Úlfarsson, gaf þau saman með táknrænum en ólögformlegum hætti. 21. ágúst 2023 11:18
Matthías í Hatara til Brandenburg Matthías Tryggvi Haraldsson hefur verið ráðinn sem texta- og hugmyndasmiður á auglýsingastofunni Brandenburg. 8. apríl 2022 11:19