„Ég hoppaði af gleði“ Smári Jökull Jónsson skrifar 23. september 2023 20:16 Bryndís Arna með boltann í leik með Val. Vísir/Vilhelm Bryndís Arna Níelsdóttir var í gærkvöldi kölluð inn í landsliðshóp kvenna í knattspyrnu fyrir leik liðsins gegn Þýskalandi á þriðjudag. Hún hoppaði af gleði þegar kallið kom.
Bryndís Arna Níelsdóttir hlaut ekki náð fyrir augum landsliðsþjálfarans Þorsteins Halldórssonar þegar landsliðshópurinn var kynntur fyrir leikina gegn Wales og Þýskalandi. Sagði Þorsteinn hana ekki tilbúna í verkefni með A-landsliðinu. Vakti það töluverða athygli því Bryndís varð markahæst í deildakeppni Bestu deildar kvenna í sumar og skoraði þar 14 mörk. Bryndís Arna spilaði hins vegar með U-23 ára liði Íslands í gær og skoraði í sigri þess gegn Marokkó. Eftir leikinn var Bryndís síðan kölluð inn í A-landsliðshópinn vegna meiðsla Sveindísar Jane Jónsdóttur. „Það var geggjað að fá kallið. Ég hoppaði af gleði,“ sagði Bryndís Arna þegar Svava Kristín íþróttafréttakona heyrði í henni hljóðið í morgun. Bryndís Arna var þá stödd í París á leið sinni til Þýskalands þar sem hún hittir landsliðshópinn. „Ég vissi ekkert að það væri einhver tæpur þannig að ég var bara að undirbúa mig fyrir verkefnið með U23-ára liðinu. Ég var með fullan fókus þar og þetta kom skemmtilega á óvart.“ Ísland mætir Þýskalandi í Þjóðadeildinni á þriðjudaginn en liðið vann góðan 1-0 sigur á Wales í gær.
Landslið kvenna í fótbolta Þjóðadeild kvenna í fótbolta Mest lesið Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Enski boltinn Útsalah á mörkum í Lundúnum Enski boltinn Luke Littler grét eftir leik Sport Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Fótbolti Jackson komst upp fyrir Eið Smára Enski boltinn Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Enski boltinn Cullen stormaði út af blaðamannafundi Sport Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Fótbolti Versta frumraun í úrvalsdeild? Körfubolti Salah sló þrjú met í dag Fótbolti Fleiri fréttir Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Isak með þrennu í stórsigri Newcastle Haaland: Ég hef ekki verið nógu góður Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Guardiola: Við erum í vandræðum með að skora Lengi getur vont versnað hjá Man. City Hólmbert og félagar náðu ekki að vinna fallslaginn Nú verður hægt að vinna Beckenbauer bikarinn Messi með eigin treyjur upp um alla veggi á heimilinu Logi Ólafs kveður eftir áratugastarf í MH Sjá meira