Erlent

Nær því að leysa gamla ráðgátu um sólina

Samúel Karl Ólason skrifar
Solar Orbitar, Parker Solar Proge og sólin.
Solar Orbitar, Parker Solar Proge og sólin. ESA

Vísindamenn eru að nálgast svör við gamalli ráðgátu um sólina. Það hefur lengi vakið furðu að kóróna sólarinnar er heitari en yfirborð hennar.

Nýjar mælingar sem gerðar vorum með gervitunglunum Solar Orbiter, frá Geimvísindastofnun Evrópu (ESA), og Parkar Solar Probe, frá Geimvísindastofnun Bandaríkjanna (NASA), munu líklega reynast stjarneðlisfræðingum mikilvægar við að leysa ráðgátuna.

Eins og fram kemur á Störnufræðivefnum er sólin umkringd hjúpi sem kallast kóróna. Þaðan kemur sólvindurinn sem veldur norðurljósum en kórónan er um 150 sinnum heitari en yfirborð sólarinnar. Kórónan er um milljón gráður á Celsíus en yfirborðið tæplega sex þúsund gráður.-

Erfitt hefur verið að rannsaka þennan mun af einhverju viti, þar til nú.

Á Stjörnufræðivefnum, og vef ESA, segir að þann 1. júní í fyrra hafi afstaða gervitunglanna tveggja gert mögulegt að gera mælingar á kórónunni á sama tíma en úr mismunandi vegalengdum. Ítalskur stjarneðlisfræðingur sem heitir Daniele Telloni uppgötvaði þetta og notaði tækifærið.

Hér að neðan má sjá myndband frá ESA sem sýna á hvernig rannsóknin var framkvæmd.

Niðurstöðurnar úr þessari rannsókn gefa til kynna að getgátur vísindamanna í gegnum árin hafi líklega reynst réttar. Það sé ókyrrð í sólinni og kórónunni sem valdi þessum hitamun. Þessari ókyrrð er lýst á þann veg að hún sé ekki ósvipuð því þegar hrært er í heitu kaffi með skeið.

Eins og segir á Stjörnufræðivefnum:

„Þegar hrært er í bollanum hreyfist vökvinn handahófskennt. Orkan flyst til yfir á sífellt minni skala og nær hámarki í umbreytingu yfir í hita. Í tilviki sólkórónunnar er vökvinn líka segulmagnaður svo segulorkan umbreytist líka í hita.

Tilfærsla segulorku og hreyfiorku í hita er kjarninn í ókyrrðinni. Á smáum skala víxlverka ókyrrðin við stakar agnir, aðallega róteindir, svo þær hitna.“

Frekari rannsóknar er þörf til að svara ráðgátunni fyrir fullt og allt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×