Lífið

Hús­­­­­fyllir í Hörpu þegar vin­­­­­sælustu hlað­­­­­varp­­stjörnur landsins stigu á svið

Íris Hauksdóttir skrifar
Vinirnir og hlaðvarpsstjörnurnar Tryggvi, Tinna og Ingó troðfylltu Eldborgarsal Hörpu.
Vinirnir og hlaðvarpsstjörnurnar Tryggvi, Tinna og Ingó troðfylltu Eldborgarsal Hörpu. Hrefna Dís Pálsdóttir

Hlaðvarpsstjörnurnar Tinna Björk Kristinsdóttir, Tryggvi Freyr Torfason og Ingólfur Grétarsson hafa síðastliðin fimm ár haldið úti hlaðvarpinu Þarf alltaf að vera grín? Í tilefni tímamótanna efndu þau til viðburðar í Hörpu sem seldist upp á mettíma. 

Óhætt er að segja að um eitt vinsælasta hlaðvarp landsins sé að ræða enda fáheyrt að hlaðvarpsstjörnur fylli heila tónleikahöll af áhorfendum. Þetta er í áttunda sinn sem hópurinn heldur svokallað Lifandi hlaðvarp en þessi viðburður er sá langstærsti til þessa og verður sennilega seint toppaður, nema hópurinn haldi utan landsteinanna. 

Fylltu Eldborgarsal Hörpu á hálftíma

Alls seldust 1.600 miðar á viðburðinn sem haldinn var í Eldborgarsal Hörpu. 

Þrjátíu og fimm mínútum eftir að forsala hófst voru allir miðarnir seldir. Það voru því margir svekktir hlustendur þáttanna sem náðu ekki í miða. Þríeykið segist ekki hafa búist við svona gríðarlegum undirtektum. 

Tinna Björk segir tilfinninguna ólýsanlega að stíga á svið í Hörpu.Helgi S. Guðjónsson

Spurð hvernig tilfinningin hafi verið að stíga inn í stútfullan salinn segir Tinna Björk það hafa verið ólýsanlegt. 

„Það er erfitt að lýsa því í fáum orðum hvað þetta var stórkostleg upplifun. Stemningin og krafturinn frá áhorfendum var eitthvað sem við munum aldrei gleyma. Sýningin sjálf gekk framar vonum. Það getur ekki mikið klikkað með svona áhorfendur í salnum.“

Skemmtilegasta vinna í heimi

Tinna ítrekar þakklæti þríeykisins gagnvart öllum þeim sem lögðu hönd á plóg. 

„Við erum svo botnlaust þakklát öllum sem hafa komið að þessarri vegferð með okkur og langar af öllu hjarta að þakka gestunum okkar Unnsteini Manuel, Huginn og Vilhelm Neto sérstaklega fyrir að taka þátt í þessu með okkur. Að okkar mati er ekki til betri leið til að fagna fimm árum saman í skemmtilegustu vinnu í heimi.“

Hér fyrir neðan má sjá myndir af dyggum aðdáendum hlaðvarpsins mæta í Hörpu.

Að sögn stjórnendanna fær hver hlaðvarpsþáttur um tuttugu þúsund hlustanir. Það var því mikil eftirspurn eftir miðunum.Vísir/Hulda Margrét

Vinirnir og grínistarnir fjalla um misalvarlega hluti í hlaðvarpsþættinum.Vísir/Hulda Margrét

Viðburðurinn var að sögn Tinnu afskaplega vel heppnaður enda erfitt annað með svo góða áhorfendur í salnum.Vísir/Hulda Margrét

Myndaveggurinn naut mikilla vinsælda gesta. Vísir/Hulda Margrét

Aðdáendahópur ÞAFG er risastór og margir sem tengja við þríeykið í gríni sínu.Vísir/Hulda Margrét

Rakel, Bryndís, Anna Sara, Ólöf, Diljá,og Kristín Ása.Vísir/Hulda Margrét

Oddný og Emelía.Vísir/Hulda Margrét

Rúna, Bryndís og Eva.Vísir/Hulda Margrét

Aníta og Guðríður.Vísir/Hulda Margrét

Karlotta og Ásgerður Diljá.Vísir/Hulda Margrét

Þórunn, Dóra og Tinna Jóhanns.Vísir/Hulda Margrét

Aron Kristinn og Hjördís Helga.Vísir/Hulda Margrét

Kristín Ósk og Diljá Björt.Vísir/Hulda Margrét

Jenný, Hafdís, Friðþóra og Kristín.Vísir/Hulda Margrét

Margrét, Sigurlaug og Katrín.Vísir/Hulda Margrét

Petra og Ragga.Vísir/Hulda Margrét

Guðrún og Jóhanna.Vísir/Hulda Margrét

Tengdar fréttir

Seldu upp Eld­borg á hálf­tíma

Vinirnir og grínistarnir Tinna, Tryggvi og Ingó seldu 1.600 miða á sýningu sína í Eldborgarsal Hörpu á einungis þrjátíu og fimm mínútum. Um er að ræða viðburð sem er svokallað „lifandi hlaðvarp“ en þríeykið stýrir saman geysivinsælu hlaðvarpi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.