Umferð á hringveginum aldrei verið meiri Magnús Jochum Pálsson skrifar 14. ágúst 2023 14:49 Aldrei hefur mælst jafnmikil umferð í nokkrum mánuði og í júlímánuði síðastliðnum. Sennilega spilar mikill ferðamannafjöldi þar inn í. Vísir/Vilhelm Aldrei hefur mælst meiri umferð á hringveginum í einum mánuði og í júlí síðastliðnum. Samkvæmt Vegagerðinni stefnir í að umferðin í ár verði um sjö prósentum meiri en árið 2022 og slái öll umferðamet.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu á vef Vegagerðarinnar. Þar segir að umferðin í júlímánuði hafi verið um sjö prósentum meiri en í sama mánuði árið 2022. Sú aukning varð til þess að aldrei hefur mælst meiri umferð í júlí. Ekki nóg með það heldur er þetta mesta umferð sem hefur mælst í einum mánuði frá því mælingar hófust. Hér má sjá hlutfallslegan mun á umferðinni frá árinu í ár og síðasta ári.Vegagerðin Umferðin á hringveginum er mæld með sextán lykilteljurum sem dreifast um höfuðborgarsvæðið, Suðurland, Norðurland, Austurland og Vesturland. Í tilkynningunni segir að tæplega 125 þúsund ökutæki hafi farið yfir mælisniðin sextán á hverjum sólarhring. Þá segir einnig að „svo óvanalega vildi til að mesta aukningin mældist á og við höfuðborgarsvæðið, en á því svæði mælist alla jafna litlar sveiflur.“ Skýringin á þessu kunni að vera sú að á síðasta ári var óvenju lítil umferð á höfuðborgarsvæðinu miðað við árstíma. Hins vegar hafi umferðin um Norður- og Austurland dregist saman miðað við sama mánuð á síðasta ári, eða um 1,9 prósent og 4,5 prósent. Á þessum svæðum mældist einnig samdráttur í umferð á síðasta ári samanborið við árið 2021.
Umferð Samgöngur Vegagerð Ferðamennska á Íslandi Mest lesið Stór hópur fullorðins fólks á Íslandi lifir eins og börn Innlent Banaslys á Suðurlandsvegi eftir grjóthrun Innlent Spyr um ábyrgð skólastjóra í stóra skómálinu Innlent Hvetja landsmenn til að búa sig undir neyðarástand Innlent Suðurlandsvegi lokað vegna alvarlegs slyss Innlent Menningarslys verði frumvarpið samþykkt Innlent „Hér er verið að saka fólk um alvarlega þætti“ Innlent Vilja úthýsa einkaþotum og þyrlum Innlent Trump „mjög reiður“ út í Pútín Erlent Reksturinn í uppnámi og uppsagnir fyrirhugaðar Innlent Fleiri fréttir Fyrstu hundrað dagar ríkisstjórnarinnar og gervigreindaræði Efling ungmennastarfs í Breiðholti meðal aðgerða „Allt að því hroki eða yfirlæti“ að tala um reynsluleysi „Hér er verið að saka fólk um alvarlega þætti“ Banaslys á Suðurlandsvegi eftir grjóthrun Skipar stýrihóp um áfengis- og vímuefnameðferð „Ég vil að þú sért alltaf með farða, annars sjást bólurnar þínar“ Vilja úthýsa einkaþotum og þyrlum Hvetja landsmenn til að búa sig undir neyðarástand Björn hvergi af baki dottinn Sjór gekk yfir fjárhús í Vík og allt á floti Suðurlandsvegi lokað vegna alvarlegs slyss Hveitibrauðsdögunum lokið: Ríkisstjórnin pólitískt stórtækari en von var á Menningarslys verði frumvarpið samþykkt Spyr um ábyrgð skólastjóra í stóra skómálinu Segir ÍR að slökkva á skiltinu Ríkisstjórnin hefur starfað í hundrað daga og fjármálaáætlun kynnt Bein útsending: Gera upp fyrstu hundrað daga ríkisstjórnarinnar Stór hópur fullorðins fólks á Íslandi lifir eins og börn Hallarekstur stöðvaður á næstu tveimur árum Áfram talinn vanhæfur til að taka sæti í ráðinu Bein útsending: Ráðherra kynnir fjármálaáætlun Reksturinn í uppnámi og uppsagnir fyrirhugaðar Trúverðugleiki forsætisráðherra sé í húfi Grindvíkingar segjast vera Excel skjöl í ráðuneytum í Reykjavík Grænlandsheimsókn varaforseta og þrumuveður Þremur vísað út af Landspítalanum Stemningin farin ári fyrir stjórnarslitin Arftaki 757-þotunnar ekki í boði frá Boeing Eina fjallamennskunámið leggst að óbreyttu af Sjá meira