Innlent

„Ég fann fimm­tán stykki á ör­fáum mínútum“

Helena Rós Sturludóttir skrifar
Stefanía Ösp Guðmundsdóttir, móðir og hjúkrunarfræðingur, rétt náði að koma í veg fyrir að sonur hennar innbyrgði nikótínpúða á leikvelli.
Stefanía Ösp Guðmundsdóttir, móðir og hjúkrunarfræðingur, rétt náði að koma í veg fyrir að sonur hennar innbyrgði nikótínpúða á leikvelli. Vísir/Dúi

Sífellt fleiri tilkynningar berast eitrunarmiðstöð Landspítala vegna barna sem innbyrða nikótínpúða að sögn sérfræðings. Stefanía Ösp Guðmundsdóttir móðir nítján mánaða drengs sem rétt náði að koma í veg fyrir að hann borðaði púða á leikvelli í vikunni segir þá algjöra plágu.

„Ég var úti með börnin mín á skólalóðinni þegar ég sé allt í einu að nítján mánaða strákurinn minn heldur á einhverju hvítu í hendinni sem er á leiðinni upp í munn. Ég stekk af stað og næ að kippa þessu úr hendinni á honum og sé að þetta er nikótínpúði. Þannig ég ákveð að ganga hring á skólalóðinni og ég fann fimmtán stykki á örfáum mínútum,“ segir Stefanía Ösp. 

Þekkt vandamál

Stefanía vakti athygli á málinu á Facebook og eins og sést létu viðbrögðin ekki á sér standa. Foreldrar segja ástandið ólíðandi. Mikil aukning hefur orðið í notkun ungmenna á svokölluðum nikótínpúðum og svo virðist sem notuðu púðarnir eigi erfitt með að finna ruslatunnur, því þá má finna á víð og dreifð á götum borgarinnar, meðal annars á leikvöllum og skólalóðum. 

Stefanía Ösp týndi fjölda púða á nokkrum mínútum. Mynd aðsend

Tilkynningum fjölgar

Sérfræðingur hjá eitrunarmiðstöð Landspítalans segir tilkynningum vegna barna sem hafa innbyrt slíka púða fari sífell fjölgandi. Að meðaltali sé tilkynnt um eitt tilfelli á viku. „Ég held að margir átti sig ekki á hversu hættulegt þetta er. Það er lífshættulegt að innbyrða nikótínpúða fyrir börn og gæludýr þannig við þurfum öll að vera á varðbergi fyrir þessu,“ segir Stefanía Ösp. Auk hættunnar fylgi þessu mikill sóðaskapur.

„Auðvitað þurfa þeir sem eru að nota púðana að henda þessu í ruslið en á meðan þetta er á götunum þá langar mig til að hvetja fólk að vera með hanska og pikka þetta upp svo að leiksvæði og skólalóðir verði öruggur staður fyrir börnin okkar,“ segir hún jafnframt og vekur um leið athygli á því að í nikótínpúðadollunum sé sérstakt hólf fyrir notaða púða.


Tengdar fréttir

Aug­lýsingar Svens ó­lög­legar

Neytendastofa hefur úrskurðað auglýsingar nikótínpúðaverslunarinnar Svens ólögmætar og veitt fyrirtækinu fjögurra vikna frest til að fjarlægja þær.

Svens kærir á­kvörðun um ó­lög­mætar aug­lýsingar

Forsvarsmenn nikótínpúðaverslunarkeðjunnar Svens hafa ákveðið að kæra ákvörðun Neytendastofu, þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að auglýsingar Svens og merkingar á verslunum séu í andstöðu við ákvæði laga um nikótínvörur, til áfrýjunarnefndar neytendamála.

Ó­hugnan­leg á­hrif á tauga­þroska og heila­starf­semi

Fólk áttar sig almennt ekki á gríðarlegum styrkleika nikótíns í nikótínpúðum, að sögn doktors í lýðheilsuvísindum. Samkvæmt rannsóknum hafa púðarnir mikil áhrif á taugastarfsemi og draga úr gæðum sáðfrumna.

Fjörutíu prósent karla 18 til 24 ára nota nikótínpúða daglega

Tæplega fjörutíu prósent karla á aldrinum 18 til 24 ára notuðu nikótínpúða daglega á síðasta ári og hefur þeim fjölgað mikið á milli ára. Tannlæknir hefur áhyggjur af hraðri þróun og segir að hægt sé að gera betur í forvörnum. Dæmi séu um að fólk sofi með nikótínpúða uppi í sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×