Menning

Hættir tíma­bundið sem rektor og vinnur að heimilda­mynd í Úkraínu

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Börkur og Valur eru mættir til Úkraínu. 
Börkur og Valur eru mættir til Úkraínu.  Kvikmyndaskóli Íslands

Börkur Gunnarsson, rektor Kvikmyndaskóla Íslands, hefur lagt leið sína til Úkraínu í þeim tilgangi að taka upp heimildamynd um þær menningarbreytingar sem nú eiga sér stað í landinu. 

Í tilkynningu á vef Kvikmyndaskólans segir frá ferðalögum Barkar. Á síðasta ári dvaldi Börkur, ásamt Val Gunnarssyni, rithöfundi og blaðamanni, í sex vikur í Úkraínu þar sem þeir fluttu fréttir frá stríðinu fyrir Ríkisútvarpið. Í leiðinni vann Börkur grunn að heimildamynd sem hann hyggst nú klára. 

Þá kemur fram að Börkur hefur starfað sem blaðamaður um árabil en hann hóf blaðamannaferil sinn á Balkanskaganum í Bosníustríðinu á tíunda áratugnum og hefur sinnt störfum á átakasvæðum, meðal annars í Afganistan og Írak. 

Ferð Barkar hófst á sýningu á fyrstu kvikmynd hans, tékknesku myndinni Silný Kafe, á kvikmyndahátíð í Kosice í Slóvakíu. Þá lá leiðin yfir landamærin til Úkraínu þar sem Börkur og Valur hyggjast ljúka við upptökur á myndinni. 

Kvikmyndin Silný Kafe er fyrsta kvikmynd Barkar.Kvikmyndaskóli Íslands

Í fjarveru Barkar kemur Hlín Jóhannesdóttir, framleiðandi og núverandi starfsmannastjóri Kvikmyndaskólans, til með að hlaupa í skarð hans sem rektor skólans. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.