Viðskipti innlent

Ólögmæt notkun Stjörnugríss á íslenska fánanum

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Stjörnugrís hefur verið mikið í fjölmiðlum upp á síðkastið, aðallega vegna umfjöllunar um sláturaðferðir fyrirtækisins.
Stjörnugrís hefur verið mikið í fjölmiðlum upp á síðkastið, aðallega vegna umfjöllunar um sláturaðferðir fyrirtækisins. Samsett

Neytendastofa hefur bannað Stjörnugrís að merkja Smass-hamborgara sína með íslenska fánanum þar sem kjötið er ekki alíslenskt. Neytendastofa segir fyrirtækið stunda óréttmæta viðskiptahætti sökum villandi upplýsinga þar sem hamborgararnir eru að mestu úr þýsku nautakjöti.

Þetta segir í tilkynningu á vef Neytendastofu.

Þar segir að Neytendastofa hafi tekið ákvörðun gagnvart Stjörnugrís hf. vegna óheimilar notkunar félagsins á þjóðfána Íslendinga á umbúðum fyrir Smass hamborgara sem voru að stærstum hluta framleiddir úr þýsku nautakjöti. 

„Var það mat stofnunarinnar að þar sem íslenskar nautaafurðir mynduðu aðeins rétt rúmlega 20% af innihaldi Smass hamborgurum félagsins gæti hún ekki talist íslensk, þar sem innflutt hráefni væri einkennandi hluti hennar og það eðlislíkt búvöru sem er framleidd hér á landi,“ sagði einnig.

Félaginu hafi því verið óheimilt að nota brot úr þjóðfána Íslendinga við markaðssetningu á umræddri vöru.

Hér má sjá smass-borgara Stjörnugríss.Heimkaup

Þar að auki hafi notkun fyrirtækisins á íslenska þjóðfánanum á framhlið umbúðanna falið í sér villandi upplýsingar til neytenda um uppruna vörunnar. Neytendur hafi mátt ganga út frá því að um íslenska vöru væri að ræða og því hafi fyrirtækið veitt rangar upplýsingar og viðskiptahættir þess þar af leiðandi verið óréttmætir.

Hins vegar hyggst Neytendastofa ekki sekta Stjörnugrís þar sem fyrirtækið var búið að líma þýska fánann yfir þann íslenska í kjölfar bannsins.

Stjörnugrís hefur verið töluvert mikið í umfjöllun undanfarið vegna þess að það er eina sláturhúsið á Íslandi sem gasar svín. Að sögn innanbúðarmanns hjá fyrirtækinu þjást svínin verulega við gösunina, öskra og ærast áður en þau taka síðasta andardráttinn.


Tengdar fréttir

Eitt slátur­hús á Ís­landi gasar svín

Eitt af fjórum svínasláturhúsum á Íslandi notar koltvíoxíð gas til að aflífa svín. Thelma Róbertsdóttir sérgreinadýralæknir hjá Matvælastofnun segir þetta samræmast lögum um dýravelferð og Evrópureglugerð. Enn þá sé þetta besta aðferðin til aflífunar svína.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×