Menning

Seldi fyrstu nektar­myndina sína til The We­eknd

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Elli Egilsson er búsettur í Las Vegas en var með sýninguna SAMMÁLA ásamt föður sínum, Agli Eðvarðssyni, í Gallery Port.
Elli Egilsson er búsettur í Las Vegas en var með sýninguna SAMMÁLA ásamt föður sínum, Agli Eðvarðssyni, í Gallery Port. Vísir/Vilhelm

Elli Egilsson er heillaður að kvenlíkamanum sem viðfangsefni í myndlistinni en fyrsta slíka málverkið sem hann seldi fór til ofurstjörnunnar The Weeknd. Elli er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst ásamt föður sínum, Agli Eðvarðssyni, en þeir stóðu saman fyrir sýningunni SAMMÁLA í Gallery Port.

Hér má sjá þáttinn í heild sinni:

„Ég elska viðbein, rifbein, axlir og hálsinn. Mér finnst rosa gaman að vinna með skugga í þessu,“ segir Elli Egilsson um kvenlíkama verk sín.

Hangir í 70 milljón dollara glæsihýsi

„Fyrsta málverkið sem ég seldi í þeirri seríu var þegar The Weeknd keypti af mér verk. Við erum búnir að vera félagar í mörg ár, alveg áður en hann varð svona svakalega stór. Við erum einn stór vinahópur.“

Verkið frá Ella hangir inni á skrifstofu heima hjá Weeknd, í 70 milljón dollara glæsihýsi hans í Beverly Hills. The Weeknd er að gefa út nýja sjónvarpsseríu sem ber heitið The Idol og er verkið hans Ella sýnilegt í seríunni og var þeim innblástur.

Aðspurður hvort nektin hafi einhvern tíma verið óþægilegt viðfangsefni fyrir honum svarar Elli:

„Nei en ég fór ágætlega mjúklega inn í þetta. Eins og þegar ég var að sýna þetta, ég þurfti að fá sjónarhorn og álit frá Maríu eiginkonu minni hvort þetta væri sexual fyrir henni. Á sama tíma veit hún allt ferlið mitt og afhverju ég var að gera þetta. Fyrir mér er þetta 100% bara fegurð.“

Fríða Nipple

Hann segist ekki mála karlmenn þar sem karlmannslíkaminn heillar hann ekki á sama hátt.

„Mig langaði bara að tjá það sem mér finnst fallegt. Mér finnst landslag fallegt, mér finnst árfarvegir fallegir, mér finnst snjór fallegur, mér finnst brjóst falleg, mér finnst axlir fallegar. Ég sé engan mun þarna á milli. 

Ég er alin upp við að fara í Vesturbæjarlaugina með ömmu og mömmu og þær voru berbrjósta. Og það ætti að vera svoleiðis í dag. Ég skýrði eitt verkið mitt Fríða Nipple, því mér finnst þetta svo absúrd dæmi að kvenmenn þurfi að hylja sig að ofan til að fara í sundlaug. Mér finnst þetta crazy.“

Hægt er að horfa á fleiri þætti af Kúnst hér.

Þættirnir KÚNST með Dóru Júlíu rannsaka hinar ýmsu víddir listsköpunar, ólíka listmiðla og sköpunargleði hjá íslenskum samtíma listamönnum ásamt því að fá að skyggnast bak við tjöldin og heyra um persónulegt líf þeirra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.