Innlent

Gifting Bam Margera á Ís­landi var ekki gild

Kristinn Haukur Guðnason skrifar
Brúðkaupskossinn í Hafnarhúsinu eftir að Margera og Boyd strengdu heitin
Brúðkaupskossinn í Hafnarhúsinu eftir að Margera og Boyd strengdu heitin Youtube

Lögmenn Bam Margera halda því fram að gifting hans og Nicole Boyd á Íslandi hafi ekki verið lögleg. Pappírum hafi aldrei verið skilað inn.

Boyd, meint eiginkona Margera, ákvað að skilja við hann í febrúar síðastliðnum. Ástæðurnar sem hún nefndi voru einkum vímuefnavandi Jackass stjörnunnar fyrrverandi. Síðan þá hefur hún haldið því fram að Margera hafi ekki greitt neitt með barni þeirra.

Margera og Boyd giftust eins og frægt er hér á Íslandi. Athöfnin fór fram í Hafnarhúsinu snemma í október árið 2013 en þar steig Margera á svið með hljómsveit sinni FuckFack Unstoppable í styrktartónleikum fyrir hljólabrettagarði í Reykjavík. Margera var á þessum árum mikill Íslandsvinur.

Presturinn sem gaf þau saman var finnski tónlistarmaðurinn Andy McCoy. Greint var frá því að McCoy hafði talið að athöfnin væri degi seinna og svaf hann yfir sig um klukkutíma.

Pappírum ekki skilað inn

Margera á í útistöðum við Boyd um umgengnisrétt yfir barni þeirra. Nú hefur lögmæti giftingarinnar dregist inn í deiluna en lögmenn Margera halda því fram að jafn vel þó að parið hafi strengt heitin hafi löglegum pappírum aldrei verið skilað á réttan stað.

Lögmenn Boyd hafa brugðist við þessu og segja að þó að pappírunum hafi aldrei verið skilað inn hafi parið lifað saman sem hjón og hún verið í góðri trú um að þau væru gift.

Margera hefur verið mikið í fréttum undanfarin ár og yfirleitt ekki fyrir neitt jákvætt. Nú seinast í apríl var greint frá því að hann væri á flótta í fjóra daga undan lögreglunni vegna líkamsárásar gegn fjölskyldumeðlimum. Hann gaf sig loks fram en má ekki eiga í neinum samskiptum við bróður sinn eða föður.


Tengdar fréttir

Bam Margera gaf sig fram

Jackass-stjarnan Bam Margera gaf sig fram við lögreglu í Pennsylvaníu í morgun eftir að hafa verið eftirlýstur í fjóra daga fyrir að kýla bróður sinn. Margera var látinn laus úr varðhaldi gegn 50 þúsund dala tryggingu en má ekki eiga í samskiptum við föður sinn og bróður eða koma nálægt heimili sínu

Eftirlýstur Bam Margera flúði af vettvangi

Lögreglan í Pennsylvaníu hefur lýst eftir Bam Margera, Íslandsvini og Jackass-stjörnu, í kjölfar þess að hann réðist á mann fyrr í dag. Talið er að fórnarlambið sé bróðir Margera. Handtökuskipun hefur verið gefin út á hendur Margera sem flúði af vettvangi eftir árásina.

Bam Margera í öndunar­vél

Bandaríska Jackass-stjarnan og Íslandsvinurinn Bam Margera hefur verið lagður inn á sjúkrahús og er í öndunarvél. Ástand hans er sagt stöðugt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×