Tíska og hönnun

Dagskrá HönnunarMars í loftið: „Hvað nú?“

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Frá sýningu Hildar Yeoman, fatahönnuðs, á hátíðinni í fyrra.
Frá sýningu Hildar Yeoman, fatahönnuðs, á hátíðinni í fyrra. Aldís Pálsdóttir

HönnunarMars breiðir úr sér um höfuðborgarsvæðið dagana 3. - 7. maí næstkomandi. Í ár ber hátíðin yfirskriftina Hvað nú? 

Fjölbreytta dagskrá má nú kynna sér á heimasíðu hátíðarinnar. Eins og áður segir er yfirskrift hátíðarinnar „Hvað nú?“

„Hvað er að gerast núna? Hvað tekur við? Hvað ber framtíðin í skauti sér?“ segir í tilkynningu frá Hönnunarmars. Þar segir enn fremur:

„Yfir 100 sýningar, 400 þátttakendur og 100 viðburðir munu endurspegla það sem er að gerast núna á sviði hönnunar og arkitektúrs, veita innsýn inn í nýjar lausnir og hugmyndir og sýna nýjar leiðir til að takast á við áskoranir samtímans til innblásturs fyrir þátttakendur og gesti.“

Mikil stemning á HönnunarMars á síðasta ári.aldís pálsdóttir

Endurvinnsla, endurnýting, nýsköpun, verðmætasköpun, tilraunir, leikur verða rauður þráður í dagskránni.

„Ólíkar hönnunargreinar á borð við arkitektúr, grafíska hönnun, fatahönnun, vöruhönnun, stafræna hönnun og allt þar á milli sýna þá grósku sem á sér stað í hönnun hér á landi.“

Alþjóðlega ráðstefnan DesignTalks ríður á vaðið í Hörpu miðvikudaginn 3. maí en í kjölfarið opna sýningar hátíðarinnar sem stendur til sunnudagsins 7. maí.

Hægt er að kynna sér dagskrána nánar hér.


Tengdar fréttir

HönnunarMars settur í Hörpu með lúðrablæstri

Hátíðin, sem í ár fer fram í fjórtánda sinn, var sett með pompi og prakt í Hörpu í gær. Hátíðina settu Þórey Einarsdóttir, stjórnanda HönnunarMars, Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóra Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs ásamt Degi B. Eggertssyni, borgarstjóra Reykjavíkur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.