Viðskipti innlent

Stofnuðu Markaðs­stofu höfuð­borgar­svæðisins eftir tveggja ára undir­búning

Árni Sæberg skrifar
Fulltrúar allra sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu komu að stofnun markaðsstofunnar.
Fulltrúar allra sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu komu að stofnun markaðsstofunnar. Aðsend

Í dag var Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins stofnuð eftir tveggja ára undirbúning. Markaðsstofan verður áfangastaðastofa fyrir höfuðborgarsvæðið allt og stofnendur eru Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Ferðamálasamtök höfuðborgarsvæðisins.

Í fréttatilkynningu um stofnun Markaðsstofunnar segir að hún verði vettvangur til að markaðssetja og þróa áfangastaðinn höfuðborgarsvæðið í heild og ná þannig betri árangri.

Þá segir að samhliða stofnuninni verði áfangastaðaáætlun höfuðborgarsvæðisins birt.

„Undanfarin tvö ár hafa SSH unnið ötullega með ferðaþjónustunni að því að greina með hvaða hætti uppbyggingu og markaðssetningu ferðaþjónustu verði best háttað á höfuðborgarsvæðinu. Með stofnun Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins er stigið mikilvægt skref í að tryggja samræmdar aðgerðir sem tengjast ferðaþjónustu á sviði markaðsmála og þróun áfangastaðarins. Með tilkomu stofunnar verður til öflugt samstarf sem mun efla samkeppnishæfni áfangastaðarins, ferðaþjónustunni og höfuðborgarsvæðinu til heilla,“ er haft eftir Regínu Ásvaldsdóttur, formanni stjórnar SSH.

Ferðaþjónustufyrirtæki hafi lengi kallað eftir markaðsstofu 

Haft er eftir Þóri Garðarsyni, formanni Ferðamálasamtaka höfuðborgarsvæðisins, að ferðaþjónustufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu hafi lengi kallað eftir því að markaðsstofa verði stofnuð fyrir svæðið.

„Með þessu er kominn vettvangur fyrir fyrirtæki til að hafa með beinum hætti áhrif á hvernig markaðssetning og þróun ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu muni verða á næstu árum. Er óhætt að segja að þetta er eitt stærsta framfaraskrefið í ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu,“ er haft eftir honum.

Þórdís Lóa leiðir stjórnina

Þá segir að Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, borgarfulltrúi Viðreisnar sé formaður stjórnar nýstofnaðar Markaðsstofu.

„Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa unnið að ferðamálum bæði sitt í hverju lagi og saman en nú er komið að því að bjóða öllum hagaðilum að taka þátt í verkefninu og um það snýst Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins. Nú förum við í það að þróa, móta og efla samstarf og samlegð um málefni ferðaþjónustunnar á höfuðborgarsvæðinu milli sveitarfélaga, atvinnulífs og stjórnvalda, þannig að allar raddir og áherslur komi fram, verkefninu til heilla,“ er haft eftir henni í fréttatilkynningu.

Þá segir að Björn H. Reynisson sé verkefnast






Fleiri fréttir

Sjá meira


×