Heilbrigðari notkun á samfélagsmiðlum Mikael Lind skrifar 3. apríl 2023 07:00 „Það er orðið skelfilega augljóst að tæknin okkar hefur farið fram úr mannkyninu” Albert Einstein. Líf þar sem manni þarf aldrei að leiðast, það hlýtur að vera algjör blessun. Eða hvað? Það fer eftir því hvað kemur í staðinn. Bókin Veröld ný og góð eftir Aldous Huxley (1932) fjallar um dystópískt samfélag sem er ekki stjórnað af ótta heldur gert þægt af hamingju. Boðskapurinn er að líf án tilbreytinga er líka óæskilegt, því mannfólkið í bók Huxleys er í raun bara hamingjusamt á yfirborðskenndan hátt en í staðinn vantar það dýpri merkingu og sköpunarkraft. Sumir fræðimenn eru farnir sjá samsvörun í okkar samfélagi þar sem afþreying er nánast orðin að trúarbrögðum. Síminn hefur tekið að sér hlutverk stafræns nammipoka sem við opnum í hvert skipti sem okkur leiðist. Dagdreymi og íhugun virðist vera á leið út, og þess í stað kemur skyndiyndið, stöðug leit að skammgóðri unun. Vissulega er síminn eitthvað meira en bara afþreyingartæki en við verðum samt að gera okkur grein fyrir að hann er ekki beint að stuðla að djúphugulli notkun og sérstaklega ekki að meiri lestri. Þrátt fyrir bjartsýni í fyrstu um getu fólks að lesa lengri greinar í tækjunum sínum virðast margar rannsóknir í dag sýna að venjulegur notandi lesi ónákvæmara og grynnra á skjá en á blaði. Það reynist allt fleirum erfitt að útiloka umhverfið og ná hugarró frá stafrænu áreiti og áhrifin sjást víða. Hugurinn getur einfaldlega ekki einbeitt sér að mörgu í einu (s.k. “multitasking”) heldur færir fókusinn fram og til baka á milli athafna, með afgerandi tapi á einbeitingu og hugarorku í kjölfarið. Rannsókn frá Háskólanum í London sýndi fram á að þegar starfsmenn gerðu próf á sama tíma og það var verið að trufla þá með tölvupóstum og símtölum misstu þeir að meðaltali 10 greindarvísitölustig, sem er hægt að bera saman við að kannabisneysla veldur 5 stiga tapi. Á TikTok horfa notendur að meðaltali 15 sekúndur á hvert myndband, og við eyðum 15 sekúndum eða minna á yfir 55% af heimasíðunum sem við heimsækjum. Samkvæmt nýrri rannsókn yfirgefur helmingur notenda heimasíðu sem er lengri en 6 sekúndur að hlaðast. Það segir sig sjálft að við hegðum okkur öðruvísi þegar við dveljumst í þessum stafræna heimi en þegar við náum að aftengja okkur og lesa bók. Skáldsögur láta okkur ferðast inn í hugarheim annarra og skynja heiminn frá þeirra sjónarhorni, og rannsóknir sýna að þetta hefur jákvæð áhrif á samkennd og meðlíðan. Samfélagsmiðlar geta hins vegar haft öfug áhrif á okkur þar sem tæknirisarnir sem hanna þá græða á skautun, því við eigum það til að eyða meiri tíma í að skoða efni sem móðgar eða pirrar okkur frekar en eitthvað jákvætt. Sálfræðingar útskýra þetta þannig að heilinn setur okkur í varnarstöðu þegar eitthvað alvarlegt gerist í umhverfinu, og þess vegna eiga slys og hamfarir það til að gleypa athygli okkar. Tæknirisarnir misnota þessa staðreynd sér í hag. Við eyðum gríðarlegum tíma í tækjunum okkar og eru flestir meðvitaðir um þetta. Í staðinn fyrir að stara 4 klukkutíma á símann eftir skóla eða vinnu segja margir að þeir hefðu frekar viljað notað mínúturnar í að lesa bók, hreyfa sig, eyða tíma með fjölskyldunni eða æfa sig á hljóðfæri, svo eitthvað sé nefnt. Samt finnst mörgum erfitt að koma þessu í verk vegna þess að símafíknin nær að yfirgnæfa allar iðjur sem krefjast meiri einbeitingar. Það er sem sagt ekki þannig að mikil símanotkun gerir okkur hamingjusama; samkvæmt nýjum tölum er hið gagnstæða nærri sannleikanum, og sálfræðingar eru farnir að sjá alvarlegar afleiðingar á andlega líðan sérstaklega hjá ungu fólki þar sem heilinn er ennþá að þróast. Það sem er gert til að gera okkur háða er að öppin senda stöðugt frá sér tilkynningar til notendanna til að láta þeim líða eins og þeir þurfi að bregðast við strax, þó svo að innihaldið sé sjaldnast mjög mikilvægt. Frítíminn okkar er orðinn að söluvöru tæknirisa sem hafa það sem viðskiptamódel að selja upplýsingar um okkur svo að önnur fyrirtæki geta síðan sérhannað auglýsingar sem birtast í flæðinu hjá okkur. Við kaupum meira ef allt gengur hratt fyrir sig; ef við höfum tíma til umhugsunar hættum við gjarnan við því oft vantar okkur í raun ekkert. Tæknin er frábær en við verðum að læra að nota hann á heilbrigðan hátt og reyna að forðast þær venjur sem stela frá okkur mikilvægum tíma í lífinu. Þessi viðhorfsbreyting til samfélagsmiðla getur ekki bara átt sér stað á einstaklingsplani heldur verða stjórnmálamenn og aðrir í áhrifamiklum stöðum að reyna að finna leiðir til að stuðla að heilbrigðari venjum. Markmiðið er auðvitað ekki að henda tækninni út um gluggann heldur frekar að finna betur út hvenær tæknin er hagkvæm og sparar okkur tíma, og hvenær hún er óhollur tímaþjófur. Þar að auki er lýðræðisvinkill í þessu þar sem falsfréttir eru sagðar dreifast út um sex sinnum hraðar en venjulegar fréttir. Þetta er vegna þess að þær vekja upp sterkar tilfinningar hjá fólki. Ógnarhratt upplýsingaflæði nútímans kemur í veg fyrir að fólki finnst það hafa tíma að skoða sanngildi frétta í dag og netið er oft algjör ormagryfja þar sem fólk öskrar í eyrað hvert á annað og núanseruð umræða er þá víðsfjarri. Að lokum enda ég á því sem Peter Gibbons sagði í myndinni Office Space, sem á enn betur við í dag en þegar myndin kom út: „Við höfum ekki mikinn tíma á þessari jörð! Okkur var ekki ætlað að sóa honum með þessum hætti! Mönnum var ekki ætlað að sitja í litlum klefum og glápa á tölvuskjái allan daginn.“ Höfundur er háskólakennari og tónskáld. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Samfélagsmiðlar Börn og uppeldi Mest lesið Halldór 5.10.2024 Jón Þór Stefánsson Halldór Eignafólk græðir mikið á vaxtastefnu Seðlabankans Stefán Ólafsson Skoðun Telur rektor Háskóla Íslands úrskurði alþjóðadómstóla og ályktanir Sameinuðu þjóðanna vera pólitískt álitamál? Elí Hörpu- og Önundarbur Skoðun Spilling á Íslandi: Erum við að missa tökin? Ágústa Árnadóttir Skoðun Sleppum brúnni og förum betri leið framhjá Selfossi Elliði Vignisson Skoðun Af ofurhetjum og störfum þeirra Kristín Björnsdóttir Skoðun Þriðjungur barna af erlendum uppruna tilheyrir ekki skólanum sínum Sara Björg Sigurðardóttir Skoðun Að dansa í regninu Lóa Björk Ólafsdóttir Skoðun Uppeldi frá gamla einmenningar eins-skin-litar viðhorfum Matthildur Björnsdóttir Skoðun Einstakur atburður og viðbúnaður Marinó G. Njálsson Skoðun Skoðun Skoðun Uppeldi frá gamla einmenningar eins-skin-litar viðhorfum Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Af ofurhetjum og störfum þeirra Kristín Björnsdóttir skrifar Skoðun Eignafólk græðir mikið á vaxtastefnu Seðlabankans Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Þriðjungur barna af erlendum uppruna tilheyrir ekki skólanum sínum Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Telur rektor Háskóla Íslands úrskurði alþjóðadómstóla og ályktanir Sameinuðu þjóðanna vera pólitískt álitamál? Elí Hörpu- og Önundarbur skrifar Skoðun Framtíðarkvíði er ekki gott veganesti Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Spilling á Íslandi: Erum við að missa tökin? Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Orkan á Vestfjörðum Þorsteinn Másson skrifar Skoðun Smábátar eru þjóðhagslega hagkvæmari en togarar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Foreldrar eru sérfræðingar í sínum börnum Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Vísindin vakna til nýsköpunar! Einar Mäntylä skrifar Skoðun Risastórt lýðheilsumál sem Alþingi hunsar Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar Skoðun Þess vegna býð ég mig fram Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Skoðun Sleppum brúnni og förum betri leið framhjá Selfossi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Einstakur atburður og viðbúnaður Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Framboð er eina leiðin Eiríkur St. Eiríksson skrifar Skoðun Háskóli Íslands er ekki að sinna skyldum sínum Silja Höllu Egilsdóttir skrifar Skoðun Verðmætasköpun og kennarar Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Nýjar lausnir gegn ofbeldi Drífa Snædal skrifar Skoðun Lögin um það sem er bannað Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Að dansa í regninu Lóa Björk Ólafsdóttir skrifar Skoðun Dauðarefsing Pírata Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Af hverju erum við að þessu? Kjartan Sveinn Guðmundsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða í boði orkugeirans og Landsvirkjunar Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Úrskurðargrautur lögmanna Ómar R. Valdimarsson skrifar Skoðun Er vitlaust gefið í stjórnmálum? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Hinn langi USArmur Ísraels Ingólfur Steinsson skrifar Skoðun Kveðja frá Heimssýn til landsfundar VG 2024 Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Þjóðaróperan á Alþingi í nær 70 ár Finnur Bjarnason,Þórunn Sigurðardóttir skrifar Skoðun Um Ölfusárbrú og veggjöld Haukur Arnþórsson skrifar Sjá meira
„
Telur rektor Háskóla Íslands úrskurði alþjóðadómstóla og ályktanir Sameinuðu þjóðanna vera pólitískt álitamál? Elí Hörpu- og Önundarbur Skoðun
Þriðjungur barna af erlendum uppruna tilheyrir ekki skólanum sínum Sara Björg Sigurðardóttir Skoðun
Skoðun Þriðjungur barna af erlendum uppruna tilheyrir ekki skólanum sínum Sara Björg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Telur rektor Háskóla Íslands úrskurði alþjóðadómstóla og ályktanir Sameinuðu þjóðanna vera pólitískt álitamál? Elí Hörpu- og Önundarbur skrifar
Telur rektor Háskóla Íslands úrskurði alþjóðadómstóla og ályktanir Sameinuðu þjóðanna vera pólitískt álitamál? Elí Hörpu- og Önundarbur Skoðun
Þriðjungur barna af erlendum uppruna tilheyrir ekki skólanum sínum Sara Björg Sigurðardóttir Skoðun