Innlent

Fær ekki að á­frýja dómi vegna skot­á­rásarinnar á Egils­stöðum

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Frá aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Austurlands.
Frá aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Austurlands. Gunnar Gunnarsson/Austurfrétt

Hæstiréttur telur ekki ástæðu til að veita Árnmari Jóhannesi Guðmundssyni leyfi til að áfrýja átta ára fangelsisdómi fyrir skotárás á Egilsstöðum í ágúst árið 2021.

Seint á síðasta ári staðfesti Landsréttur dóm Héraðsdóms Austurlands yfir Árnmari. Árnmar játaði brot sitt að hluta í héraði en neitaði þó alvarlegustu sakargiftunum, tilraun til manndráps.

Óskaði hann eftir því að fá leyfi til áfrýja niðurstöðu Landsréttar vegna tveggja ákæruliða, sem sneru að tilraun til manndráps. Taldi hann dóm Landsréttar bersýnilega rangan auk þess sem að eki hafi verið hægt að staðreyna ásetning hans með beinum hætti. Það hefði verulega almenna þýðingu að fá úr málinu skorið.

Taldi hann einnig að til grundvallar niðurstöðu dómsins hafi verið lagður framburður lögreglumanns sem hafi hlutdræga aðkomu að málinu auk þess sem margvíslegir annmarkar hafi verið á vettvangsrannsókn lögreglu.

Hæstiréttur féllst ekki á þessar röksemdir og telur að ekki verði séð að málið lúti að atriðum sem hafi verulega almenna þýðingu. Þá byggi niðurstaða Landsréttar um sakfellingu jafnframt að verulegu leyti á mati á sönnunargildi munnlegs framburðar en það mat verður ekki endurskoðað fyrir Hæstarétti.


Tengdar fréttir

Átta ára fangelsi fyrir skotárás á Egilsstöðum

Árnmar Jóhannes Guðmundsson hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi, meðal annars fyrir tilraun til manndráps, eftir skotárás á Egilsstöðum í ágúst í fyrra. Hann var skotinn af lögregluþjóni eftir að hafa farið vopnaður skammbyssu og haglabyssu að húsi barnsföður kærustu sinnar, þar sem hann beindi byssu að tveimur sonum hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×