Innlent

Stríðs­ára­­safnið verður ekki opnað í sumar

Bjarki Sigurðsson skrifar
Stríðsárasafnið var reist á Reyðarfirði árið 1995 í þeim tilgangi að gera fólki kleift að ferðast aftur til daga hersetunnar og ýmist rifja upp gömul kynni eða stofna til nýrra.
Stríðsárasafnið var reist á Reyðarfirði árið 1995 í þeim tilgangi að gera fólki kleift að ferðast aftur til daga hersetunnar og ýmist rifja upp gömul kynni eða stofna til nýrra. Stöð 2

Stríðsárasafnið á Reyðarfirði verður ekki opnað í sumar með þeim hætti sem hefur verið undanfarin ár vegna tjóns sem varð á húsakosti safnsins síðastliðið haust og uppgötvaðist í byrjun árs. Þó hafa engar skemmdir orðið á sýningarmunum safnsins. 

Ákvörðunin var tekin í síðustu viku af stjórn Menningar- og safnastofnunar Fjarðabyggðar. Talsverðar skemmdir urðu á aðalsýningarhúsi safnsins, auk þess sem tveir braggar sem stóðu á sýningarsvæðinu eyðilögðust. Greint var frá lekanum hér á Vísi í janúar. 

Venjulega er safnið opið frá byrjun júnímánaðar til loka ágúst. Búið er að fjarlægja braggana sem eyðilögðust en þeir voru frá stríðstímanum. 

„Ekki verður hægt að endurbæta húsnæði safnsins fyrir sumarið 2023 og því var þessi ákvörðun tekin en jafnframt var forstöðumanni safnastofnunar falið að skoða útfærslu á sýningu á Reyðarfirði fyrir sumarið 2023 og er von á tillögum varðandi það á næstunni,“ segir í tilkynningu frá Fjarðabyggð.

Kristján Már Unnarsson, fréttamaður okkar, heimsótti safnið í fyrrasumar.

Klippa: Aldnir og ungir annast stríðsárasafn



Fleiri fréttir

Sjá meira


×