Fótbolti

Segir sína menn þurfa að eiga tvo frá­bæra leiki til að komast á­fram

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Klopp er spenntur fyrir einvíginu gegn Real Madríd.
Klopp er spenntur fyrir einvíginu gegn Real Madríd. Cristiano Mazzi/Getty Images

Jürgen Klopp, þjálfari Liverpool, segir sína menn þurfa að eiga tvo frábæra leiki til að slá Real Madríd út í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Að sama skapi Þjóðverjinn að Real þurfi ekki að eiga sína bestu leiki til að komast áfram.

Eftir 3-0 tap gegn Wolves í upphafi mánaðar hefur Liverpool unnið bæði Everton og Newcastle United með tveimur mörkum gegn engu. Klopp vonast til að lið sitt taki þann meðbyr með sér inn í einvígið gegn Spánar- og Evrópumeisturunum.

„Ég er mjög ánægður að leikurinn sé núna, hefði verið allt annað hefðum við spilað fyrir fjórum vikum síðan. Lífið snýst um tímasetningar. Mögulega höfum við fundið taktinn þó ég hefði búist við að við yrðum líkir sjálfum okkur þó við hefðum ekki unnið síðustu tvo leiki þar sem þetta er önnur keppni og maður verður að nýta tækifæri sem þessi,“ sagði Klopp á blaðamannafundi fyrir leikinn.

„Við getum vonandi byggt ofan á þessa tvo sigra en það er ljóst að við þurfum að spila frábærlega í báðum leikjunum til að komast áfram. Það truflar mig ekkert, maður þarf að vera upp á sitt besta til að eiga möguleika. Real þarf það hins vegar ekki til þess að eiga möguleika, það er munurinn. Ég get ekki beðið,“ bætti sá þýski við og var mögulega að minnast á úrslitaleik liðanna í Meistaradeildinni á síðasta ári.

Þar var Liverpool mun sterkari aðilinn frá upphafi til enda en samt tókst Real Madríd að landa 1-0 sigri. Klopp hafði ekki horft aftur á þann leik þangað til nú um daginn.

„Ég áttaði mig strax á af hverju ég hafði ekki horft á leikinn aftur, það var kvöl og pína. Við spiluðum vel og áttum að vinna leikinn. Þeir skoruðu markið sem skildi liðin af, ekki við. Maður sá hversu reynslumikið lið Madríd er, hversu litlu máli það skipti að andstæðingurinn fengi færi. Sjálfstraustið fór aldrei niður á við, þeir vissu alltaf að þeir myndu fá færi.“

„Það er saga á milli þessara félaga. Það virðist sem annað okkar sé alltaf í úrslitum og til að komast í úrslitaleikinn þarftu að fara í gegnum okkur eða þá. Að þessu sinni mætumst við, sjáum til hver fer áfram.“

Á endanum tjáði Klopp sig um rasismann í garð Vinícius Júnior, leikmanns Real Madríd.

„Það er ekkert í heiminum sem afsakar kynþáttaníð,“ sagði Klopp að endingu.

Leikur Liverpool og Real Madrid hefst klukkan 20 í kvöld og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2.


Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×