Erlent

Færði heims­byggðinni þakkir fyrir að­stoðina

Fanndís Birna Logadóttir og Kjartan Kjartansson skrifa
Maður gengur í rústum húss í Antakya. Kona og tvö börn hennar fundust á lífi í húsarústum í borginni í dag.
Maður gengur í rústum húss í Antakya. Kona og tvö börn hennar fundust á lífi í húsarústum í borginni í dag. AP

Mevlut Cavusoglu, utanríkisráðherra Tyrklands, þakkaði í dag öllum þeim ríkjum sem hafa boðið fram aðstoð sína eftir skjálftana mannskæðu í síðustu viku en að hans sögn hafa hundrað ríki boðist til að aðstoða og eru björgunarsveitir frá 76 löndum núna í Tyrklandi. 

Tólf lönd hafa kallað sínar björgunarsveitir heim. Þá hafa Tyrkir fengið fjölmörg tjöld og annan búnað sendan erlendis frá. Hátt í fjörutíu þúsund manns eru nú sagðir látnir í Tyrklandi og Sýrlandi og viðbúið að sú tala verði enn hærri. Fjöldi fólks er heimilislaus vegna skjálftanna og einblína yfirvöld nú á að aðstoða það.

Björgunarstarfi fer að ljúka hvað af hverju en þó var móður og tveimur börnum hennar bjargað lifandi úr rústum íbúðarbyggingar í Antakya. Þau höfðu verið í 228 klukkustundir í rústunum, allt frá því að jarðskjálfti af stærðinni 7,8 reið yfir snemma dags 6. febrúar.

Mæðginin eru sögð við þokkalega heilsu en þau voru byrjuð að líða vökvaskort. Þau voru flutt á sjúkrahús til aðhlynningar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×