Innlent

Fjögurra bíla á­rekstur á Sæ­braut

Bjarki Sigurðsson skrifar
Mynd úr safni.
Mynd úr safni. Vísir/Vilhelm

Fjögurra bíla árekstur varð á Sæbraut við Skeiðarvog í Reykjavík skömmu fyrir klukkan ellefu í dag. Einn var fluttur til skoðunar á slysadeild en er ekki talinn vera alvarlega slasaður. 

Samkvæmt varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu segir töluverðar skemmdir vera á bílunum sem lentu í árekstrinum. Tafir eru á umferð á Sæbraut um þessar mundir á meðan verið er að ganga frá á vettvangi og flytja bílana í burtu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×