Bíó og sjónvarp

Titanic leikstjórinn lét endurgera atriðið: „Jack hefði getað lifað af“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Mikið hefur verið deilt um endalok Jack Dawson í Titanic.
Mikið hefur verið deilt um endalok Jack Dawson í Titanic. Samsett/Getty

Áhorfendur Titanic fylgdust agndofa með atriðinu í sjónum, þegar Rose lá á braki og Jack var í sjónum. En hefði Jack þurft að deyja? 

Eins og allir vita fór þetta ekki vel fyrir Jack, hann fraus úr kulda en Rose lifði af og var bjargað úr sjónum af björgunarbát skömmu síðar. Margir hafa velt því fyrir sér hvort Jack hefði ekki getað legið með henni á brakinu og bjargað þannig lífi sínu. Þau hefðu þá kannski lifað hamingjusöm til æviloka. 

Leikstjórinn James Cameron gerði sérstakan þátt með National Geographic í tilefni að því að 25 ár eru liðin frá því að Titanic myndin kom út. Myndin er þar skoðuð frá ýmsum sjónarhornum. Cameron lét meðal annars endurgera atriðið úr myndinni þegar Jack deyr. Vildi hann kanna hvort Jack hefði mögulega getað lifað af.

Sýnt var brot úr þessu í þættinum Good Morning America. 

Cameron telur öruggt að ef Jack hefði lagst við hlið Rose, hefðu þau bæði verið of mikið ofan í vatninu og orðið of köld. Ef þau hefðu bæði setið, hefði þetta mögulega gengið upp. Það hefði líka getað breytt miklu ef Rose hefði farið úr björgunarvestinu og látið Jack fá það, fyrir auka einangrun á líkamann.  

Niðurstaða Cameron var á endanum sú að Jack hefði getað lifað af, en það hefðu margir þættir þurft að spila inn í það. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.