Innlent

Tafir á Hring­braut vegna á­reksturs

Atli Ísleifsson skrifar
Morgunumferð í Reykjavík. Myndin er úr safni.
Morgunumferð í Reykjavík. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Umferðartafir mynduðust eftir að tveir bílar rákust saman við hringtorgið á mótum Suðurgötu og Hringbrautar í í Reykjavík í morgun.  

Samkvæmt upplýsingum frá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um málið um klukkan 8:45.

Enginn slasaðist í árekstrinum en tafirnar mynduðust þar sem draga þurfti bílana á brott með krók.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×