Viðskipti innlent

Fá byr í seglin með 1,4 milljarða styrk frá ESB

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Frá vinstri á myndinni eru: Baldvin Björn Haraldsson (BBA//FJELDCO), Anna Margrét Guðjónsdóttir (Evris) , Óskar Svavarsson og María Kristín Þrastardóttir (SideWind), Guðmundur Óskarsson (Samskip), Kjartan Due Nielsen (Verkís) og Bryndís Nielsen (Athygli).
Frá vinstri á myndinni eru: Baldvin Björn Haraldsson (BBA//FJELDCO), Anna Margrét Guðjónsdóttir (Evris) , Óskar Svavarsson og María Kristín Þrastardóttir (SideWind), Guðmundur Óskarsson (Samskip), Kjartan Due Nielsen (Verkís) og Bryndís Nielsen (Athygli). Aðsend

Evrópusambandið hefur veitt orkuskiptaverkefninu WHISPER 1,4 milljarða króna styrk og er hann til fjögurra ára. Fjögur íslensk fyrirtæki eru hluti af þessu fjölþjóðlega samstarfi en það eru SideWind, Samskip, BBA//FJELDCO og Athygli. Þar að auki leiðir verkfræðistofan Verkís verkefnið.

Fram kemur í fréttatilkynningu að tilgangur verkefnisins sé að þróa og prófa nýsköpunarlausnir í orkuskiptum á sjó sem geti dregið úr losun gróðurhúsaloftegunda hjá flutningaskipum. Lausnirnar felist í blöndu af sólar- og vindorkutækni ásamt þróun á rafstýrðum seglum og geymslulausnum fyrir rafmagn. 

Áætlað er að hægt sé að draga úr edsneytisnotkun tanskipa um 30 prósent og gámaskipa um að lágmarki 15 prósent. Fram kemur að skipaflutningar losi 2,5 prósent gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu og því geti verkefnið haft mikið að segja fyrir umhverfið. 

„Við erum stolt að hafa verið valin til að stýra þessu spennandi nýsköpunarverkefni. Það fellur vel að áherslum okkar um orkuskipti, sjálfbærni og nýsköpun og það skiptir líka máli að íslensk fyrirtæki taki þátt í þeirri þróun sem á sér stað erlendis á þessum vettvangi,“ er haft eftir Kjartani Due Nielsen, verkefnastjóra nýsköpunar hjá Verkís í tilkynningu.

Þátttökufyrirtækin í verkefninu eru: Verkís, SideWind, Samskip, BBA//FJELDCO og Athygli frá Íslandi; Canoe, Ayro og Stirling Design International frá Frakklandi; Solbian, Ant Topic og Dotcom frá Ítalíu; Nav-Tech frá Hollandi; Lloyds Register frá Bretlandi og Inspiralia GmbH frá Austurríki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×