Erlent

Faðir myrti fjöl­skyldu sína eftir að konan sótti um skilnað

Kjartan Kjartansson skrifar
Mæðgur leggja blóm og tuskudýr við heimili fjölskyldunnar þar sem morðin voru framin. Fjölskyldan var virk í starfi mormónakirkjunnar og þekkt í bæjarlífinu.
Mæðgur leggja blóm og tuskudýr við heimili fjölskyldunnar þar sem morðin voru framin. Fjölskyldan var virk í starfi mormónakirkjunnar og þekkt í bæjarlífinu. AP/Laura Seitz/The Deseret News

Karlmaður á fimmtugsaldri skaut fimm börn sín, eiginkonu sína, tengdamóður og loks sjálfan sig í Utah í Bandaríkjunum tveimur vikum eftir að konan sótti um skilnað. Börnin voru á aldrinum fjögurra til sautján ára gömul.

Lögreglumenn fundu átta lík á heimili fjölskyldunnar eftir að tilkynning barst um að ekki hefði sést til hennar í nokkurn tíma í bænum Enoch í Utah á miðvikudag.

Geoffrey Chesnut, borgarstjórinn í Enoch, sagði á fréttamannafundi í gær að lögregla vissi af því að eiginkona mannsins hefði sótt um skilnað en ekki lægi fyrir hvort að það væri tilefni morðanna. Lögregla upplýsti á sama fundi að hún hefði rannsakað hagi fjölskyldunnar fyrir nokkrum árum án þess að skýra nánar hvers vegna, að sögn AP-fréttastofunnar.

Lögregla telur að eiginmaðurinn, sem var 42 ára gamall, hafi skotið eiginkonu sína, sem var fertug, tengdamóður og börnin fimm, þrjár stúlkur og tvo drengi. Hjónin áttu meðal annars sjö ára gamla tvíbura. Tengdamóðir mannsins, sem var 78 ára gömul, bjó tímabundið á heimilinu til að aðstoða á erfiðum tíma, að sögn AP.

Hafi ekki óttast eiginmanninn

Eiginkonan sótti um skilnað 21. desember og manni hennar voru kynnt gögn um það 27. desember. Ekki liggur fyrir á hvaða forsendum konan sóttist eftir skilnaði. Lögmaður konunnar segir að hún hafi ekki lýst ótta við að eiginmaður hennar kynni að valda henni líkamstjóni. Lögmaðurinn hefði þó aðeins hitt hana tvisvar.

Joe Biden Bandaríkjaforseti og eiginkona hans Jill sendu frá sér yfirlýsingu vegna morðanna þar sem þau sögðust syrgja með samfélaginu í Enoch. Hvöttu hjónin til þess að til aðgerða væri gripið til þess að fækka byssuglæpum sem eru nú algengasta dánarorsök barna í Bandaríkjunum.

Fjöldamorð innan fjölskylda af þessu tagi hafa orðið æ algengari vestanhafs á undanförnum árum. Í fyrra voru sautján slík morð framin þegar miðað er við fjögur fórnarlömb eða fleiri. Í tíu tilfellum svipti morðinginn sig lífi.


Tengdar fréttir

Átta manna fjöl­skylda fannst skotin til bana á heimili sínu

Fimm börn eru á meðal átta manns sem fundust skotnir til bana í heimahúsi í smábæ í Utah í Bandaríkjunum í gær. Lögreglumenn fundu líkin þegar þeir fylgdu eftir ábendingu um að ekki hefði spurst til fjölskyldunnar í einhvern tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×