Erlent

Bandaríkjamenn skylda fólk frá Kína í kórónuveirupróf

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Allir ferðalangar frá Kína þurfa brátt að taka kórónuveirupróf við komuna til Bandaríkjanna og fleiri ríkja.
Allir ferðalangar frá Kína þurfa brátt að taka kórónuveirupróf við komuna til Bandaríkjanna og fleiri ríkja. AP Photo/Ng Han Guan

Bandaríkin hafa nú bæst í hóp þeirra ríkja sem ætla að krefjast kórónuveiruprófa á ný frá ferðalöngum frá Kína, eftir að þarlend stjórnvöld tilkynntu um það að landamæri landsins verði að fullu opnuð frá og með næstu viku.

Ítalía, Japan, Tævan og Indland hafa einnig ákveðið að allir sem komi frá Kína verði nú prófaðir en Ástralía og Bretland ætla ekki að breyta reglum sínum. Kína hefur meira og minna verið lokað fyrir ferðalanga en þeir sem þangað fóru þurftu að gangast undir próf og sóttkví til langs tíma. Þetta breytist innan tíðar þrátt fyrir að bylgja nýrra tilfella sé nú að ganga yfir landið að mati margra.

Stjórnvöld í Kína segja að um fimm þúsund manns smitist á degi hverjum en þessar tölur er verulega dregnar í efa af sérfræðingum sem segja veiruna mun útbreiddari í raun og veru og að líklega séu um milljón manns að smitast á degi hverjum.

Einnig virðast spítalar landsins í vandræðum með að koma öllum sem eru veikir fyrir auk þess sem bólusettir í Kína eru mun færri hlutfallslega en í flestum öðrum ríkjum.


Tengdar fréttir

Sóttkví verði ekki lengur skilyrði í Kína

Kínversk stjórnvöld hafa gefið út að átta daga sóttkví verði ekki lengur skilyrði inngöngu í landið frá og með 8. janúar. Hægt og bítandi hefur sóttvarnartakmörkunum verið aflétt síðustu vikur en enn er langt í land.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×