Rannsaka kosningaframlög FTX-forkólfa Kjartan Kjartansson skrifar 19. desember 2022 12:36 Sam Bankman-Fried leiddur í járnum í dómsal í Nassá á Bahamaeyjum í síðustu viku. AP/Austin Fernander/The Tribune Bahamas Bandarískir alríkissaksóknarar eru nú sagðir beina sjónum sínum að framlögum stjórnenda rafmyntafyrirtækisins FTX í kosningasjóði stjórnmálamanna. Þeir voru einir stærstu fjárhagslegu bakhjarlar flokkanna tveggja fyrir þingkosningarnar í síðasta mánuði.
Sam Bankman-Fried, stofnandi FTX, var handtekinn á Bahamaeyjum fyrir viku. Hann er ákærður fyrir fjársvik og peningaþvætti en einnig fyrir ólögleg kosningaframlög. Fyrir var vitað að Bankman-Fried hefði verið einn alstærsti styrktaraðili Demókrataflokksins í haust en hann hefur síðan sjálfur haldið því fram að hann hafi gefið Repúblikanaflokknum svipaðar fjárhæðir á laun. New York Times segir að saksóknarar leiti nú upplýsinga frá báðum flokkum um fjárframlög Bankman-Frieds og tveggja annarra fyrrverandi stjórnenda hjá FTX. Ekkert bendi þó til að framboðin og samtökin sem þeir styrktu hafi gert nokkuð saknæmt með því að taka við fénu. Þess í stað virðist saksóknarar afla sönnunargagna gegn Bankman-Fried og félögum. Hann er meðal annars sakaður um að hafa skráð framlög í nafni annarra einstaklinga til þess að komast hjá takmörkunum um hámarksframlög einstaklinga til stjórnmálaframboða. Sumir stjórnmálamenn úr báðum flokkum hafa skilað styrkjunum eða gefið samsvarandi upphæð til góðgerðarmála. Þrjú stærstu samtökin sem safna framlögum fyrir demókrata sögðust á föstudag ætla að setja til hliðar meira en milljón dollara frá Bankman-Fried, að sögn AP-fréttastofunnar. Samkvæmt bandarískum lögum um framlög til stjórnmálaflokka geta framboð og svonefnda pólitískar aðgerðarnefndir þurft að skila styrkjum sem reynast hafa verið ólöglegir, jafnvel þó að þær hafi þegar eytt fénu. Það gæti reynst mörgum erfitt því framlögin frá FTX-toppunum voru í mörgum tilfellum þau hæstu og yfirleitt tæpa framboð sjóði sína fyrir kosningar. Bankman-Fried er sagður hafa fært milljarða dollara af innistæðum viðskiptavina FTX og dælt inn í Alameda Research, rafmyntavogunarsjóð sinn, án vitundar þeirra. Þegar fréttir bárust af nánum tengslum FTX og Alameda gerðu viðskiptavinir áhlaup og drógu út innistæður fyrir milljarða dollara á örfáum dögum. Áhlaupið leiddi til bráðrar lausafjárþurrðar sem knésetti þessa þriðju stærstu rafmyntakauphöll heims.
Rafmyntir Bandaríkin Bahamaeyjar Þingkosningar í Bandaríkjunum Gjaldþrot FTX Tengdar fréttir „Gamaldags fjárdráttur“ hjá FTX Skiptastjóri fallna rafmyntafyrirtækisins FTX segir að það sem átti sér stað innan þess hafi ekki verið neitt flóknara en „gamaldags fjárdráttur“. Sam Bankman-Fried, stofnandi FTX, er ákærður fyrir fjársvik og peningaþvætti. 14. desember 2022 23:05 Sakaður um að féfletta fjárfesta FTX Bandaríska verðbréfaeftirlitið sakar Sam Bankman-Fried, stofnanda FTX, um að hafa féflett fjárfesta rafmyntafyrirtækisins um árabil. Fénu hafi hann beint í eigin vogunarsjóðs sem hann notaði í áhættufjárfestingar, kaup á lúxusfasteignum og styrki til stjórnmálaflokka. 13. desember 2022 14:28 Rafmyntakeisarinn sem reyndist nakinn Stofnandi rafmyntakauphallarinnar FTX var hylltur sem einhvers konar kennifaðir rafmyntarbransans og viðraði sig upp við stórstjörnur og stjórnmálamenn. Allt að milljón fjárfesta og viðskiptavina sitja nú uppi með milljarða dollara tap eftir skyndilegt hrun fyrirtækisins. 27. nóvember 2022 07:01 Mest lesið 40 prósent dýrara að leigja á almennum húsnæðismarkaði Viðskipti innlent Prakkarastrik loks opinberað: „Það leiðréttist hér með!“ Atvinnulíf Fólk muni eiga meira eftir í buddunni um mánaðamótin Neytendur Um fimmtíu verið sektuð fyrir að greiða ekki rétt fargjald Neytendur „Alltaf hægt að sjá tækifæri og fleira gott í stöðunni“ Atvinnulíf „Að fyrirtæki líti inn á við áður en kolefnisjöfnun er keypt“ Atvinnulíf Vænta þess að eigendur hússins leysi málið Viðskipti innlent Milla ráðin rekstrarstjóri hjá Ólafi Darra og félögum Viðskipti innlent 37,5 milljarðar í hagnað og nítján í arð Viðskipti innlent Leggja til lagabreytingu sem leysir af penna og pappír Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gervigreind fyrir klink veldur Bandaríkjamönnum hausverk Kínversk kúvending leiddi til hruns vestanhafs Enn deila Musk og Altman MrBeast gerir tilboð í TikTok Eftirmaður Norman yfir LIV-mótaröðinni fundinn Höfða mál gegn Musk vegna kaupanna á Twitter Vilja banna farþegum að fá sér þriðja drykkinn á flugvellinum Meta birtir óumbeðnar gervigreindarmyndir af notendum Instagram Biden stöðvar japanska yfirtöku á US Steel Næstum allir nýir bílar í Noregi rafmagnsbílar Sjá meira
„Gamaldags fjárdráttur“ hjá FTX Skiptastjóri fallna rafmyntafyrirtækisins FTX segir að það sem átti sér stað innan þess hafi ekki verið neitt flóknara en „gamaldags fjárdráttur“. Sam Bankman-Fried, stofnandi FTX, er ákærður fyrir fjársvik og peningaþvætti. 14. desember 2022 23:05
Sakaður um að féfletta fjárfesta FTX Bandaríska verðbréfaeftirlitið sakar Sam Bankman-Fried, stofnanda FTX, um að hafa féflett fjárfesta rafmyntafyrirtækisins um árabil. Fénu hafi hann beint í eigin vogunarsjóðs sem hann notaði í áhættufjárfestingar, kaup á lúxusfasteignum og styrki til stjórnmálaflokka. 13. desember 2022 14:28
Rafmyntakeisarinn sem reyndist nakinn Stofnandi rafmyntakauphallarinnar FTX var hylltur sem einhvers konar kennifaðir rafmyntarbransans og viðraði sig upp við stórstjörnur og stjórnmálamenn. Allt að milljón fjárfesta og viðskiptavina sitja nú uppi með milljarða dollara tap eftir skyndilegt hrun fyrirtækisins. 27. nóvember 2022 07:01