Erlent

Taka rafmagn af stórum svæðum

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Volódómír Selenskí forseti virðir fyrir sér skemmdir af völdum árása Rússa. 
Volódómír Selenskí forseti virðir fyrir sér skemmdir af völdum árása Rússa.  Forsetaskrifstofa Úkraínu

Stjórnvöld í Úkraínu þurfa að grípa til þess að taka rafmagnið af stórum svæðum tímabundið til þess að raforkukerfið sem eftir stendur í landinu fari ekki á hliðina.

Þetta sagði Volodomír Selenskí úkraínuforseti í sínu daglega ávarpi í gærkvöldi eftir árásir gærdagsins. Rússar skutu þá fjölmörgum flugskeytum á Úkraínu og héldur árásirnar áfram fram eftir nóttu.

Úkraínska hernum tókst þó að skjóta meirihluta flauganna niður áður en þær hittu skotmörk sín. Fjórir eru sagðir hafa látið lífið í árásum gærdagsins en auk þess að lama orkuinnviði féllu nokkrar sprengjur á íbúarhúsnæði í grennd við Zaporizhzhia í nótt án þess að nokkur hafi látið lífið.

Yfirvöld í höfuðborginni Kænugarði hafa varað íbúa við að líklega þurfi að taka rafmagnið af um það bil helmingi svæðisins næstu daga.

Nú er komið frost víða í Úkraínu og milljónir manna eru án rafmagns eða rennandi vatns. Óttast er að fjöldi fólks eigi því eftir að deyja af völdum ofkælingar.


Tengdar fréttir

Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Hart barist í hakkavélinni við Bakhmut

Utanríkisráðherrar Atlantshafsbandalagsins hétu því í gær að Úkraína fengi á endanum inngöngu í bandalagið og að frekari hernaðaraðstoð yrði send til Úkraínumanna. Því var einnig lofað að bandalagið myndi aðstoða Úkraínumenn við uppbyggingu að stríðinu loknu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×