Menning

Á ferð með mömmu vinnur aðalverðlaun á Pöff

Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar
Myndin er kynnt erlendis undir titlinum Driving mum. Myndin er svört kómedía.
Myndin er kynnt erlendis undir titlinum Driving mum. Myndin er svört kómedía. pöff

Íslenska kvikmyndin Á ferð með mömmu hlaut í kvöld aðalverðlaun kvikmyndahátíðarinnar Tallinn Black Nights Film Festival, eða Pöff, í Eistlandi. Kvikmyndahátíðin er ein sú stærsta í Austur-Evrópu.

Hilmar Oddsson leikstýrir myndinni sem fjallar um umskipti í lífi manns eftir að móðir hans fellur frá. Með uppáklætt líkið í aftursætinu og hundinn Brésnef við hlið sér tekst hann á hendur ferð þvert yfir landið til að heiðra hennar síðustu ósk. Myndin er svört kómedía. 

Myndin er framleidd af Hlín Jóhannesdóttur fyrir Ursus Parvus og með aðalhlutverk fara Þröstur Leó Gunnarsson, Kristbjörg Kjeld, Tómas Lemarquis og Hera Hilmars. Eins og áður sagði er Hilmar Oddsson leikstjóri myndarinnar og kvikmyndatöku stýrði Óttar Guðnason.

Ottar Guðnason, Þröstur Leó Gunnarsson, Hilmar Oddsson, Hera Hilmarsdóttir og Hlín Jóhannesdóttir á frumsýningu Á ferð með mömmu á PÖFF hátíðinni.Aðsent

Fimm íslenskar myndir voru sýndar á Pöff í ár en Á ferð með mömmu var sú eina sem keppti í aðalkeppninni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.