Segist vilja sýna Katar „virðingu“ frekar en að nota regnbogalitina Sindri Sverrisson skrifar 17. nóvember 2022 10:30 Hugo Lloris er markvörður og fyrirliði Frakklands og hann vill ekki vera að hrófla við neinu í Katar. Getty/Aurelien Meunier Fyrirliði franska landsliðsins í fótbolta, Hugo Lloris, virðist ekki hafa í hyggju að vera með fyrirliðaband í regnbogalitum á HM í Katar, öfugt við suma aðra fyrirliða á mótinu.
Reglur FIFA banna sérhönnuð fyrirliðabönd en samt ætla fyrirliðar sumra liða, til að mynda Harry Kane hjá Englandi, að brjóta reglurnar og senda skilaboð til Katara og annarra sem horfa á HM um að hann styðji LGBTQ+ fólk. Í Katar, þar sem samkynhneigð er bönnuð, eru réttindi þessa fólks fótum troðin. „Áður en að við gerum nokkuð þá þurfum við samþykki FIFA og samþykki [franska] sambandsins. Ég er auðvitað með mína skoðun á þessu málefni. Hún er nokkuð lík afstöðu formannsins [hjá franska sambandinu],“ sagði Lloris á blaðamannafundi í vikunni. Formaður franska knattspyrnusambandsins, Noel Le Graet, sagði að hann myndi frekar vilja að Lloris væri ekki með fyrirliðaband í regnbogalitum, þar sem að hann teldi að Frakkar ættu ekki að vera að segja öðrum þjóðum hvernig þær ættu að haga sér. Lloris hélt áfram: „Þegar við erum í Frakklandi, og tökum á móti útlendingum, þá viljum við oft að þeir fari eftir okkar reglum og virði okkar menningu. Ég mun gera það sama í Katar, svo einfalt er það. Ég get verið sammála eða ósammála þeirra hugmyndum en ég verð að sýna virðingu,“ sagði Lloris.
HM 2022 í Katar Fótbolti Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Dagskráin í dag: Bikarliðin í Bestu og United í Evrópudeildinni Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport Fleiri fréttir „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Madrídingar á tæpasta vaði Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Davíð Snær skoraði gegn toppliðinu Fram án þriggja gegn KR Guðmundur lagði upp í sigri á meisturunum Aron spilar með Joselu og Rodrigo Stefna stelpurnar okkar næst til Svíþjóðar og Danmerkur? Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Aron Einar snýr aftur til Katar Stuðningsmenn gengu berserksgang og þjálfarinn fann fyrir því Segja Frey hafa logið að leikmönnum Haaland fær frí vegna jarðarfarar Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Nasistaborði í Magdeburg til rannsóknar Þarf vernd lögreglu vegna reiði Rómverja Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - ÍA 2-0 | Afbragðsafgreiðsla Ísaks innsiglaði sigurinn „Algjör synd að við fengum ekkert út úr þessum leik“ Uppgjörið: Valur - Stjarnan 2-2 | Gylfi Þór jafnaði með stórkostlegu marki Hafa ekki heyrt frá Hearts: „Kom mér jafn mikið á óvart og þér“ Sjáðu ótrúlega sjö mínútna þrennu Smith og tvennu Nadíu Arnar sagður líklegur til að taka við í Skotlandi Grátleg niðurstaða Birnis og Gísla „Við Mosfellingar erum öðruvísi, við erum sérstakir“ Sjá meira