Erlent

Óttast blóðugar hefndar­að­gerðir yfir­valda

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Bylgja mótmæla hófst í Íran í kjölfar dauða Möhsu Amini í haldi siðgæðislögreglunnar í september. Síðan þá hafa nokkrar táningsstúlkur látið lífið en yfirvöld neita því að bera ábyrgð á dauða þeirra frekar en Amini.
Bylgja mótmæla hófst í Íran í kjölfar dauða Möhsu Amini í haldi siðgæðislögreglunnar í september. Síðan þá hafa nokkrar táningsstúlkur látið lífið en yfirvöld neita því að bera ábyrgð á dauða þeirra frekar en Amini. AP/Markus Schreiber

Írönsk íþróttakona sem stundar bogfimi hefur nú bæst í hóp íþróttakvenna sem mótmæla harkalegum framgangi íranskra stjórnvalda í kjölfar andláts hinnar 22 ára Mahsa Amini. Ekkert lát virðist vera á mótmælunum þar í landi og eiga sumir yfir höfði sér dauðadóm vegna þátttöku í mótmælunum.

Myndband sem fór í dreifingu á fimmtudag sýnir írönsku bogfimikonuna Parmida Ghasemi leyfa höfuðklút að falla af höfði sér á meðan hún var viðstödd á verðlaunaafhendingu í Tehran. Samkvæmt umfjöllun CNN um myndbandið mátti heyra áhorfendur fagna þegar verknaðurinn átti sér stað.

Ghasemi er ekki fyrsta íþróttakonan sem virðist mótmæla ástandinu í heimalandi sínu en í síðasta mánuði gerði klifurkonan Elnaz Rekabi slíkt hið sama. Rekabi keppti á Asíumótinu í klifri í Suður-Kóreu án höfuðklútar. Rekabi baðst á endanum afsökunar á því að hafa borið klútinn en tilkynningu þess efnis skrifaði hún á Instagram. Einhverjir höfðu þó áhyggjur af því að hún hefði verið þvinguð til þess að biðjast afsökunar.

Mótmæli íþróttakvenna eru þau ekki þau einu sem hafa valdið usla meðal íranskra stjórnvalda en íranski þingheimurinn skilaði frá sér bréfi á dögunum þar sem dómarastéttin er hvött til þess að sýna mótmælendum meiri hörku en gert hefur verið hingað til.

Greint hefur verið frá því að 227 af 290 þingmönnum Íran hafi undirritað bréfið. Ríkið hafi einnig ákært í það minnsta þúsund manns fyrir meinta þátttöku þeirra í mótmælunum í kjölfar andláts Amini. Tugir þeirra hafi verið kærðir fyrir „fjandskap gegn Guði“ ásamt „spillingu á jörðu“ en þau brot beri með sér dauðadóm.

Einn þeirra sem á yfir höfði sér dauðadóm vegna mótmælanna er íranski rapparinn Saman Yasin. Yasin er sagður hafa verið hávær stuðningsmaður mótmælenda og þeirra sem leggist gegn stjórnvöldum í Íran. Þessu greinir Guardian frá.

Mannréttindasamtök óttast nú að írönsk stjórnvöld hleypi nú af stað blóðugum hefndaraðgerðum til þess að reyna að þagga niður í mótmælendum og binda enda á mótmælin.


Tengdar fréttir

Finnst ekki tveimur dögum eftir að hafa keppt án slæðu

Íranska klifurkonan Elnaz Rekabi er nú horfin, tveimur dögum eftir að hafa keppt á klifurmóti í Suður-Kóreu án þess að nota slæðu. Fjölskylda hennar hefur ekki náð sambandi við hana síðan í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×