Fótbolti

Danijel byrjar í fyrsta landsleiknum og Höskuldur fyrirliði

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Víkingurinn Danijel Dejan Djuric er í byrjunarliði Íslands í Suður-Kóreu.
Víkingurinn Danijel Dejan Djuric er í byrjunarliði Íslands í Suður-Kóreu. vísir/vilhelm

Arnar Þór Viðarsson gerir sjö breytingar á byrjunarliði íslenska fótboltalandsliðsins sem mætir Suður-Kóreu í vináttulandsleik í Hwaseong í dag.

Damir Muminovic, Róbert Orri Þorkelsson, Höskuldur Gunnlaugsson og Óttar Magnús Karlsson halda sæti sínu í byrjunarliðinu frá leiknum gegn Sádí-Arabíu á sunnudaginn sem Ísland tapaði, 1-0.

Þeir Frederik Schram, Hörður Ingi Gunnarsson, Júlíus Magnússon, Viktor Karl Einarsson, Viktor Örlygur Andrason, Bjarki Steinn Bjarkason og Danijel Dejan Djuric koma inn í byrjunarlið Íslands fyrir leikinn í dag. Danijel leikur sinn fyrsta landsleik.

Leikur Suður-Kóreu og Íslands hefst klukkan 11:00 og verður í beinni textalýsingu á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×