Disney-þemagarðinum í Sjanghæ lokað vegna Covid og gestir fastir inni Hólmfríður Gísladóttir skrifar 31. október 2022 08:58 Disney-þemagarðurinn í Sjanghæ var lokaður í þrjá mánuði fyrr á þessu ári vegna Covid-19. AP/Chen Si Disney-þemagarðinum í Sjanghæ var lokað í morgun vegna Covid-19. Gestum garðsins var tilkynnt að þeir fengju ekki að fara fyrr en þeir hefðu fengið neikvæðar niðurstöður úr skimun.
Stjórnendur garðsins sendu út frá sér tilkynningu rétt fyrir hádegi að staðartíma, um klukkan 3 í nótt að íslenskum tíma, um að garðinum yrði lokað og sömuleiðis nærliggjandi svæðum. Nær lokunin meðal annars til verslunargötu sem tengist garðinum. Lokunina mætti rekja til takmarkana vegna Covid, sem stjórnendur garðsins þyrftu að fara yfir og sjá til þess að farið væri eftir. Yfirvöld í Sjanghæ sögðu á WeChat að fólki væri bannað að fara inn og út úr garðinum og að allir gestir þyrftu að bíða eftir að fá neikvæðar niðurstöður úr Covid-skimun. Þá sagði að allir þeir sem hefðu heimsótt garðinn frá 27. október síðastliðnum þyrftu að taka þrjú Covid-próf á þremur dögum. Ef marka má samfélagsmiðla var áfram opið í tækjum garðsins fyrir þá sem eru fastir inni. Tíu hafa greinst með Covid-19 í Sjanghæ frá 30. október, allir einkennalausir. Stjórnvöld í Kína hafa hins vegar tekið mögulega útbreiðslu sjúkdómsins afar alvarlega og gripið til harkalegra aðgerða til að hefta hana.
Kína Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Disney Mest lesið Kári og Sveinn til liðs við Arnar Þór Innlent Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í Fellsmúla Innlent Starfsfólkið slegið eftir brunann Innlent Dæmi um að leikarar fái 1300 á tímann Innlent Fylgi Sjálfstæðisflokksins aldrei mælst minna Innlent Ljúfsár hinsta heimsókn í Blóðbankann Innlent Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Erlent Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Erlent Sigmundur góður sessunautur af því að hann mæti sjaldan Innlent Gestur greiðir ekki krónu þó að pallaolía hafi hellst í bílinn Innlent Fleiri fréttir Watson skal áfram sæta gæsluvarðhaldi Bann gegn betli á teikniborði Svía Bera hefndaraðgerðir undir Bandaríkin Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Tuttugu skólabörn létust í eldsvoða í rútu í Taílandi Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Ísraelar herja á miðborg Beirút Sjá meira